Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

föstudagur, mars 28, 2003


Fjarstæðukenndur raunveruleiki

Jæja, enn einn raunveruleikaþátturinn er að byrja. Nú fær Trista að velja sér draumaeiginmann af því að Alex vildi hana ekki forðum. Mér finnst nú svolítið skondið að kalla þessa þætti raunveruleikaþætti. Þessi tegund sjónvarpsefnis nýtur svakalegra vinsælda um þessar mundir og bæði Skjár einn og Stöð 2 hafa nokkra svona þætti á dagskrá. Hvers vegna eru þeir kallaðir raunveruleikaþættir? Jahh, mér er spurn...

Survivor, The Bachelor, The Bachelorette, Amacing Race, The Osborns, Temptation Island, Fear Factor... já, hvað þeir nú heita allir. Þetta eru hinir margumtöluðu raunveruleikaþættir. Ef vel er að gáð má sennilega finna einhverja samsvörun milli þeirra og raunveruleikans. Eða hvað?

Survivor
16 manns settir á eyðieyju, lengst inn í Amazon-skóginn eða á miðja gresju í Afríku. Þar er þeim skipt í 2 "ættbálka" og svo keppa þau í ýmsum þrautum til að vinna verðlaun eða "friðhelgi". Ég held að ég hafi nú bara aldrei lent í slíkri upplifun í raunveruleikanum. Minn raunveruleiki einkennist frekar af því að borða eðlilegan mat (eða því sem næst), stunda nám og vinna fyrir kaupinu mínu en ekki 10 kílóum af hrísgrjónum. Niðurstaða: Survivor er ágætis leið fyrir fólk sem vill megra sig á ógnarhraða.

The Bachelor/The Bachelorette
Hversu nálægt raunveruleikanum er það að fá að deita 25 karlmenn??? Í mínum raunveruleika er nú nógu fjandi erfitt að finna einn boðlegan. En for crying out loud, 25 karlmenn sem allir líta vel út, allir með sixpack og biceps, fullt af peningum og ótrúlega rómantískir?!?!?! Nei, ég læt nú ekki plata mig svona auðveldlega. Þetta er bara ekki til! Niðurstaða: Right...

Amacing Race
Eins konar ratleikur og svakaleg verðlaun í boði... hmmm, gæti gerst. Ég hef farið í ratleiki... reyndar aldrei nein verðlaun í boði. Svo fær maður nú eiginlega alltaf að vera með í leiknum þótt maður mæti síðastur. Nei, kapphlaup milli Rómar og Víetnam er ekki svona það algengasta sem maður gerir. Niðurstaða: Ferðalag í sinni ýktustu mynd.

The Osbornes
Sumir raunveruleikaþættir ganga út á það eitt að fá að fylgjast með raunveruleikanum hjá öðrum. Ég myndi halda að við fengjum nú betri mynd af raunveruleikanum ef við fengjum að fylgjast með eðlilegu fólki. Osborne-fjölskyldan verður seint talin ein af eðlilegri fjölskyldum í heiminum. Uppdópaður uppgjafarrokkari, eiginkona með sóðakjaft, dóttir á eilífðargelgju, synir sem eru litlu skárri og litlir ljótir hundar. Niðurstaða: Ég vona að minn raunveruleiki verði aldrei neitt í líkingu við þetta.

Temptation Island
Þetta er þáttur sem ég hef aldrei skilið. Af hverju fara pör (sem að því er virðist eru fullkomlega hamingjusöm) í þátt þar sem þau eru aðskilin á paradísareyju bara til þess eins að gamna sér með 10 einstaklingum af hinu kyninu??? Annaðhvort eru þau saman eða sundur. Það þarf varla heila sjónvarpsþáttaröð svo að fólk geti áttað sig. Niðurstaða: Tempation Island er siðlaust rugl.

Fear Factor
Stundum lætur maður upp í sig alls kyns óþverra. Fyrir jól smakkaði ég blátt pepsi, um daginn smakkaði ég hlandgult mountain dew og í síðustu viku prófaði ég að kaupa morgunmat í formi súkkulaðistykkis, bara svona upp á fönnið. En að borða eistu úr hundi, kakkalakka eða gufusoðinn sporðdreka er ekki eitthvað sem ég myndi setja á matseðilinn. Niðurstaða: Fear Factor er álíka langt frá raunveruleikanum og makavalið í The Bachelor.

Nú vill svo til að allir eru þessir þættir breskir eða bandarískir og það getur svo sem vel verið að útlenskur raunveruleiki sé allt öðru vísi en þessi gamli hversdagslegi raunveruleiki hér heima á Fróni. Hvað veit ég? En þrátt fyrir að ég sé svona fullkomlega meðvituð um hvað þessir þættir eru langt frá raunveruleikanum þá horfi ég á þá flesta með miklum áhuga. Survivor og The Bachelor/Bachelorette eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Maður velur sér einstakling sem er að keppa (hvort sem það er keppni um að lifa sem lengst eða keppni um maka) og svo heldur maður með viðkomandi einstaklingi, bara rétt eins og maður heldur með KR í Landsímadeildinni. Ætli það sé ekki þar sem ég næ tengingunni við raunveruleikann. Keppni er alltaf keppni og þegar maður er orðinn heilaþveginn af sjónvarpsglápi þá er alveg jafnsjálfsagt að keppa um framtíðarmaka eins og hvað annað. Já, svona er maður einfaldur...


Sunna 00:06


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli