|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, mars 31, 2003 |
|
|
|
Fréttamannaprófið ógurlega næst ekki með stjörnuspeki
Í kvöld mun ég þreyta próf í fréttamennsku. Markmiðið er að geta sótt um vinnu sem fréttamaður á besta vinnustað í heimi, RÚV. Nú vill svo til að ég er ekki með alveg á hreinu hvernig best sé að undirbúa sig fyrir svona próf þannig að í stað þess að reyna horfi ég frekar út í loftið eða kveiki á sjónvarpinu. Ég held að þetta tengist sterkri andúð minni á prófum. Alveg sama hvað ég reyni mikið að vera dugleg að læra fyrir próf þá virðist mér alltaf takast að finna eitthvað þarfara að gera, svona eins og að fylgjast grannt með stillimyndinni í nokkra klukkutíma.
Fyrir utan hvað mér finnst leiðinlegt að undirbúa mif fyrir próf þá er hugurinn víðs fjarri þessa dagana og ég má engan veginn vera að því að hugsa um daglegt amstur. Þegar ástandið er eins og nú finnst mér ágætt að kíkja í stjörnuspá Moggans því þar má oft finna gullmola sem róa hugann þrátt fyrir að þessir fánýtu fróðleiksmolar séu óttalega kjánalegir oft á tíðum. Stjörnuspáin mín í dag er einmitt algjörlega gagnslaus og hjálpaði mér ekkert.
STEINGEIT 22. desember - 19. janúar
Fjölskylduleyndarmál geta komið upp á yfirborðið í dag. Eitthvað úr fortíð þinni mun líklega koma upp í huga þinn eða í samræðum.
Ef fjölskyldan mín á sér einhver leyndarmál er ég ekki viss um að ég vilji vita þau. Þegar stjörnuspáin er svona leiðinleg er ráð að kíkja í ársspána. Þar kemur oft fram hvort ég eigi að vera farin til útlanda eða hvað komi til með að gerast í næstu viku. Jú, jú, stendur heima! Hér koma brot úr ársspá minni:
STEINGEIT- Árið 2003 mun reynast viðburðaríkt ár fyrir steingeitina. Ekki er ólíklegt að hún flytji búferlum á árinu, leggi í miklar framkvæmdir
heima fyrir eða að breytingar eigi eftir að verða á hjúskaparstöðu hennar.
- Athygli steingeitarinnar mun að minnsta kosti beinast að heimilinu þetta árið og mun hún leggja mikið upp úr að fegra það, ekki síður en að skapa þar þægilegt andrúmsloft.
- [...] steingeitin er hvött til þess að ljúka allri pappírsvinnu, sérstaklega þeirri sem snýr að lagalegum málefnum, fyrir lok maímánaðar.
- strax í apríl einkennir mun meiri bjartsýni steingeitina en gert hefur lengi.
- Fólk í nauts-, vogar- og sporðdrekamerkinu á eftir að koma mikið við sögu á árinu og verða samskipti steingeitarinnar við nautið ekki með öllu átakalaus.
- Ekki er þannig ólíklegt að steingeitin eigi eftir að lenda í deilum við nautið varðandi trúarbrögð eða lagaleg málefni.
- Samskipti steingeitarinnar við vogina verða öllu ánægjulegri, en hún er þó hvött til að láta metnað sinn og óþolinmæði ekki spilla fyrir í samskiptum sínum við hina óákveðnu vog.
Túlkun- Búferlaflutningur: Jú, jú, ég er að fara í Nordplus til Danmerkur í haust. Framkvæmdir: Nýja eldhúsinnréttingin mín er einmitt í stofunni og bíður þess að verða sett upp. Hjúskaparstaða: Pass.
- Fegrun heimilis: Það er nottla planið að klára að koma íbúðinni í stand.
- Pappírsvinna: Það á einmitt eftir að ganga frá afsalinu af íbúðinni, gott að vita hvenær deadline er á því.
- Apríl: Apríl byrjar einmitt á morgun, ekki slæmt að fyllast bjartsýni svona korteri fyrir próf.
- Naut: Hmmm... gæti lent í deilum við George Clooney, hann er jú naut!
- Vog: Alltaf gaman að eiga ánægjuleg samskipti við fólk. Þolinmæði er lykilorðið, gæti þurft að taka mig á þar.
Ársspáin er nú ekki svo galin. En það er þó einn hængur á. Gallinn við þessa stjörnuspeki er að hún hjálpar mér ekkert í fréttamannaprófinu. Ef ég held áfram á þeirri braut, sem ég hef verið föst á síðustu 2 daga, mun ég skítfalla á prófinu og þá fæ ég ekki vinnu. Ef ég fæ ekki vinnu þá fæ ég ekki pening og ef ég fæ ekki pening þá fæ ég ekki bjór. Q.e.d. Ef prófið væri á morgun væri kannski gagn að þessari stjörnuspá. Þá verður apríl einmitt byrjaður og ég fyllist bjartsýni.
Sunna 12:58
|
|
|
|
|
|
|