|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, apríl 03, 2003 |
|
|
|
Leiðin liggur til Lettlands
Jæja, þá er það komið á hreint. Ég og Eva förum til Lettlands og það er sko no turning back now. Stefán er búinn að taka á sig mikla ábyrgð með því að bóka okkur út og þegar ekki er hægt að endurgreiða þá er sko eins gott að nýta sér ferðina og skemmta sér ærlega!
Það er nú ekki amalegt að fara á Eurovision akkúrat árið sem við vinnum. Ég er búin að reikna út að þetta getur bara engan veginn klikkað í ár. Af hverju segi ég það? Jú, ég er búin að hella mér út í tölfræðina og hún bregst aldrei. Lítum á tölulegar staðreyndir.
- Árið 1989 fór Daníel Ágúst Haraldsson til Lausanne í Sviss með lagið Það sem enginn sér. Lagið varð það sem enginn heyrði, enginn mundi eftir og enginn gaf stig. 0 stig og neðsta sætið, mesta niðurlæging þjóðarinnar í Eurovisionsögunni.
- Árið 1990 þurftum við heldur betur að rífa okkur upp eftir áfallið frá árinu áður. Sigga og Grétar slógu í gegn með Einu lagi enn og lentu í 4. sæti með 124 stig. Þó verður að hafa í huga að við vorum með þriðju hæstu stigatöluna vegna þess að Írland og Frakkland lentu saman í 2. sæti með 132 stig.
- Árið 1997 fór Páll Óskar til Dublin með það fyrir augum að sjokkera Evrópu og umturna Eurovision. Þar sem televoting var aðeins á tilraunastigi fékk hann ekki eins mörg stig og mörgum fannst hann eiga að fá. 20. sætið varð staðreynd og við féllum úr leik. Við fengum því ekki að taka þátt árið 1998.
- Árið 1999 mættum við tvíelfd til leiks eftir eitt ár í útlegð. Selma klikkaði ekki en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum voru fleiri Evrópubúar sem kusu ljóshærðu sænsku gæruna með stóru brjóstin. 146 stig og 2. sætið og ég alveg hundfúl!
- Árið 2001 klikkaði Birtan í Parken alveg illilega. Stigin urðu aðeins 3 og skal ekki fjölyrt um það hér. Við fengum ekki að fara til Eistlands í fyrra en mætum þess í stað í fínu formi til Riga í Lettlandi 24. maí.
- Árið 2003 hlýtur því bara að þýða eitt, 1. sætið. Við erum búin með 2. og 3. sætið þannig að þetta er í raun bara formsatriði.
Ég hef hér sýnt fram á með óyggjandi sönnunum að við sigrum í ár en ekki lesbísku táningsstelpurnar frá Rússlandi. Birgitta klikkar ekki, lagið er gott og keppnin verður haldin í Egilshöll að ári! Máli mínu til frekari stuðnings get ég nefnt að þegar ég var svona 10 ára sagði ég: "Við vinnum Eurovision þegar ég fer út". Ég fer út núna og ég hef alltaf rétt fyrir mér. Reyndar var ég full af stórstjörnudraumum þegar ég var 10 ára og ætlaði örugglega að standa á sviðinu sjálf en ég hef séð að mér og hugsa að ég láti hæfileikaríkara fólk um það.
En hvað um það, þeir sem trúa því ekki að við vinnum í ár geta hlustað á lögin á geimsins.com og sannfærst þar endanlega að við erum best!
Sunna 21:18
|
|
|
|
|
|
|