Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

þriðjudagur, apríl 08, 2003


Pólitískar vísindaferðir

Á morgun er aðalfundur Politicu og ég hef svitnað og púlað yfir bókhaldi félagsins sem ég á að kynna á fundinum. Þar sem ég er MR-ingur hef ég ekki mikla þekkingu á bókfærslu þannig að nokkrar kvittanir urðu að risastóru vandamáli á einu augnabliki þegar ég opnaði möppuna mína í gær. Þegar slíkt gerist getur komið sér mjög vel að þekkja einhvern úr Versló sem getur komið manni til bjargar. Og mér var bjargað. Bókhaldið er því ekki helsti hausverkur minn í augnablikinu.

Hins vegar hefur borið nokkuð á framboðsmálum sem hafa vakið athygli mína. Ég hef fengið nokkur ímeil í dag og heyrt útundan mér rætt um framboð og eftirspurn í stjórn Politicu. Í kjölfarið fór ég að kynna mér hverjir væru í framboði. Í ímeilunum sem ég fékk var hvatt til þess fólk kysi ákveðna aðila í ákveðin embætti og nafnalisti fylgdi. Það kom mér því nokkuð á óvart að aðeins hluti þeirra einstaklinga, sem voru á listanum, var í framboði.

Annað, sem vakti athygli mína, var að ekki eru allir jafnmikið fyrir að setja nafnið sitt undir það sem þeir skrifa. Þannig barst mér tölvupóstur sem var undirritaður af þeim "sem ber hag stjórnmálafræðinema fyrir brjósti". Ég ber hag stjórnmálafræðinema fyrir brjósti en mér finnst ekkert að því að setja nafnið mitt við það. Ég hlýt því að draga þá ályktun að þessi listi hafi verið eitthvað til að skammast sín fyrir og hag stjórnmálafræðinema sé ekki best borgið með þessum einstaklingum. En hvað veit ég? Kannski er viðkomandi óheyrilega feiminn og þorir ekki að skrifa neitt í eigin nafni. Erfitt að segja...

Þriðja atriðið, sem ég tók eftir, var birting á heimilisföngum og símanúmerum þeirra sem voru tilgreindir á listanum. Þetta væri kannski í lagi ef allir á listanum væru fylgjandi því en ég hef öruggar heimildir um að sumir höfðu ekki einu sinni vitneskju um að þeir væru á listanum, hvað þá að þeir væru í framboði. Þetta finnst mér því ómerkilegt í hæsta máta! Það er ekkert nema kurteisi að láta fólk vita að það sé á lista og það er nú bara ósiðlegt að gefa upp heimilsfang og símanúmer þess sem hefur ekki vitneskju um framboð sitt.

Fjórða atriðið, sem vekur mig til umhugsunar, er hversu stjórnmálalegar skoðanir virðast skipta miklu máli. Heyrst hefur að "pólitískrar íhlutunar" sé þörf þar sem ekki allir frambjóðendur séu "réttum megin" í stjórnmálum. Svipað virtist vera upp á tengingnum fyrir ári síðan og ég hef sterkan grun um að íhlutunin sé ekki minni í ár. Þetta skil ég engan veginn. Ég get ekki skilið hvaða máli það skiptir hvar menn standa í pólitík þegar þeir bjóða sig fram í stjórn nemendafélags. Það sem mestu máli skiptir er að fá fólk sem hefur áhuga, getu og vilja til að standa fyrir öflugu félagslífi. Þótt það hafi andstæðar skoðanir um pólitík, þjóðmálin eða heimsmálin þá er ekki þar með sagt að það bitni á félagslífinu. Sjálf hef ég ágæta reynslu af andstæðum pólum við sjálfa mig í pólitík og get fullyrt að stjórnmálaskoðanir hafa ekkert með það að segja hvort fólk á samleið eða ekki.

Þessi framboðsmál fara mjög í taugarnar á mér og aðferðirnar sem maður sér stundum beitt minna á verstu hrossakaup. Ég vona að fleiri geri eins og ég á morgun og kjósi eftir málefnum frambjóðendanna en ekki misviturlegum pólitískum aðgerðum og íhlutunum.


Sunna 01:06


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli