Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

sunnudagur, apríl 20, 2003


Páskablogg

Jæja, þá eru komnir páskar. Undir venjulegum kringumstæðum myndi ég vakna eldsnemma á páskadagsmorgun til að rífa í mig eins og eitt risastórt páskaegg en þessi páskadagsmorgun var frábrugðinn öðrum. Ég vaknaði illa, var illt í hálsinum, var með vott af beinverkjum þannig að ég gat ekki með nokkru móti verið kyrr og það sem mig langaði helst í var súpa eða eitthvað heitt til að róa hálsinn. Ég drattaðist því fram úr og náði mér í bollasúpu frá knorr. Merkilegt að ég skuli hafa átt slíka munaðarvöru þar sem eldhúsið mitt mun seint teljast til matarmestu eldhúsa í landinu. Súpan lagaði ástandið smá og þá var hægt að byrja á súkkulaðinu.

Eftir hádegið komu Zulema, Stella og Símon í heimsókn og var það í fyrsta skipti sem ég sá krakkana feimna. Stella fór alveg í keng við að sjá Óla og Símon hefur sjaldan verið eins lítið á fartinni. En þau virtust vera að jafna sig um það bil sem þau fóru heim aftur sem betur fer.

Í kvöld verður páskalambið svo borðað af bestu lyst og skolað á eftir með súkkulaði og öðru gúmmelaði. Svo strax eftir páska hefst ferlið sem kennt er við sjálfsblekkinguna miklu. Það einkennist af því að ég eyði heilmiklum tíma í að segja við sjálfa mig "jæja, nú er það átak og mössun" og svo geri ég aldrei neitt í málunum. Á meðan ég reyni að sannfæra sjálfa mig um að hreyfa mig ligg ég bara í rúminu með kók, nammi og horfi á vídjó. Algjört Bridget Jones syndrome! Já, við
Bridget, við erum ekki svo ósvipaðar!

Sunna 17:32


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli