Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

laugardagur, apríl 26, 2003


Skuggahliðar Broadway

Í gær virtist allt ætla að ganga á afturfótunum. Ég afrekaði að lesa alveg heilar 3 blaðsíður í síðasta heftinu í Öryggi og samvinnu og svo var ég ansi dugleg við að stara út í loftið. Leiðindasímtal setti mig algjörlega út af laginu og eftir það gat ég hreinlega ekki lært. Ég er eirðarlaus og einbeitingarlaus að eðlisfari, prófatíminn eykur enn meira á þessa ókosti mína. Það raunar alveg ótrúlegt að ég hafi ekki droppað út úr skóla fyrir lifandis löngu síðan.

En þegar ég var í sem verstu skapi í gær varð tvennt til þess að ég setti ekki í panic gír og segði skilið við námið. Óli kom og gaf mér risastóran ís og Logi hringdi í mig og bauð mér á Eurovision sýninguna á Broadway. Ég varð voða kát enda er Eurovision tilgangurinn í þessu jarðlífi. Ég mátti ráða hvað ég fékk marga miða en ég kunni ekki við að biðja um fleiri en tvo. Algjör óþarfi að vera heimtufrekur. Eftir ágætis grillveislu heima náði ég í miðana og hafði mig svo til fyrir sjóið.

Sýningin var ágæt. Sumir betri en aðrir og sumir alveg mun verri en aðrir. Einn söngvarinn var aðeins of lærður fyrir svona "léttmenningu" og Guðrún Árný á bara að syngja lög með Celine Dion, það er ekkert flóknara en það. Mikið ofsalega getur verið leiðinlegt að hlusta á hana syngja. Selma og Logi voru ágætir kynnar og ég söng með lögunum eins og sönnum júróvisjonaðdáanda sæmir.

En Broadway á sér skuggahliðar. Þetta er staðurinn sem fráskildar sjúskaðar kellingar í saumaklúbbum stunda. Þær eiga það til að drekka of mikið, verða of graðar og í leiðinni alveg óendanlega ósmekklegar. Á næsta borði við okkur Óla sat hópur af fólki sem var á svipuðum aldri og við. Tveir myndarlegir strákar virtust vera á lausu og ein kelling á þarnæsta borði tók greinilega eftir því. Hún slagaði yfir til þeirra, reyndi að fá þá til að dansa við sig en þegar það tókst ekki settist hún bara klofvega yfir annan þeirra og byrjaði að hossa sér ofan á honum. Hún var í stuttu pilsi (allt of stuttu pilsi fyrir konu sem er kominn úr blóma lífsins) og kippti því snögglega upp á maga til að geta athafnað sig betur á saklausum drengnum. Af og til glennti hún sig fyrir hinn saklausa drenginn til að hann vissi nú alveg örugglega að hún væri tilkippileg. Inn á milli fengu drengirnir örstutta pásu því kellingartuskan þurfti að komast aftur á sitt borð til að reykja sígarettuna sem hún hafði skilið eftir. Hugulsemin alltaf hreint, vildi ekki reykja ofan í blessuð börnin.

Alltaf vonaðist ég til að hún kæmi ekki aftur því ég þurfti óþægilega mikið að skreppa á klósettið. En í hvert skipti sem ég sá glyðruna nálgast þorði ég ekki að standa upp frá Óla af ótta við að hann yrði næsta fórnarlamb og hún myndi kannski éta hann eða gera eitthvað enn verra við hann. Mér fannst óþægilegt að hugsa til þess að ég gæti kannski bara fundið tætlur af Hugo-jakkafötunum útbíaðar í óæskilegum líkamsvessum útjaskaðrar konu með gráa fiðringinn. Ég minntist einmitt á það við hann að ég þyrfti að bregða mér frá en ég þyrði ekki. Svarið sem ég fékk til baka var mjög skýrt "ÞÚ FERÐ EKKI FET" og um leið skein angistin úr augunum þegar hann leit á skaðræðisskepnuna.

Í eitt skiptið sem gamla gæran brá sér frá til að reykja notuðu saklausu drengirnir tækifærið og fóru á barinn. Þegar þeir komu aftur var þessi fráskilda og misskilda komin aftur að borðinu og byrjuð að hrella vinkonur þeirra, en þó var hún ekki farin að hömpast á þeim líka. Annar strákurinn var snöggur að fara til vinkonu sinnar sem sat lengst í burtu frá skrýmslinu og fékk að setjast á stólinn hennar. Hún settist svo í fangið á honum og faðmaði hann innilega að sér. Hvort þetta var bara til þess að losna við skassið skal ósagt látið en hann fékk alla vega aðeins meira næði til að fylgjast með sýningunni. Hinn strákurinn settist aftur í sætið sitt en vinkona hans var fljót að bjóðast til að skipta um sæti þar sem Fröken Gröð og Fráskilin gerði sig líklega til að stökkva á hann. Þá settist konan við borðið hjá þeim (sem skyndilega var autt öðrum megin) en hún hitti ekki betur en svo á stólinn að hún hrundi í gólfið. Hvaða lærdóm má draga af þessu? Jú, ungir strákar eiga að varast staði eins og Broadway.

Eftir að kellingarræfillinn datt á rassinn fór minna fyrir henni. Hún færði sig aftur á borðið sitt og reykti heil ósköp. Eftir sýninguna hætti ég mér loks á klósettið og bað Óla um að geyma fyrir mig jakkann minn og veskið. Þegar ég kom aftur varð hann mjög feginn og sagði "BJARGAÐU MÉR HÉÐAN!". Á meðan ég hafði verið á klósettinu hafði komið til hans kona, ekki Fröken Gröð og Fráskilin þó, og reynt að fá hann til að dansa við sig. Ég ætla að leyfa mér að draga þá ályktun að annað hvort hafi hún verið blind, ofurölvi eða karlmaður því það þurfti engan sérfræðing til að sjá að Óli var ekki einn. Hann stóð með stelpulegan gallajakka og kvenmannsveski á öxlinni og var greinilega að bíða eftir einhverjum. Venjulegt fólk hefði því annaðhvort haldið að hann væri með einhverri stelpu eða að hann væri alveg snarsnúinn. En þessi virtist ekkert taka eftir því. Eða hvað? Kannski var henni bara alveg sama...

Niðurstaðan er alla vega þessi: Broadway er skuggalegur staður
(Til gamans má geta að
Kalli var líka á sýningunni og bloggaði einmitt líka um þetta tiltekna atvik.

Sunna 16:18


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli