Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
Gamalt blogg
Heim
Dót
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
Vinir og kunningjar
Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
LovÃsa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
Linkar
Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran
Sendu mér póst!
Powered by Bravenet.com
miðvikudagur, apríl 30, 2003
Sumarvinna
Já, nú er gaman að vera til. Óvissutímabilinu er lokið og sumarvinnan er orðin trygg. Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal í gær frá Kára Jónassyni, fréttastjóra Útvarpsins, um að koma í viðtal vegna sumarvinnu. Mér fannst það afar spennandi og skundaði full bjartsýni í viðtal í morgun. Í viðtalinu fannst mér svo skrýtið að hann vildi ekkert vita um mig, talaði bara eins og ég væri komin með vinnu. Hann útskýrði vaktaplanið fyrir mér og vinnureglurnar og alltaf fannst mér eins og hann hefði gleymt einhverju. Það var ekki fyrr en hann spurði mig hvenær ég væri búin í prófum sem ég áttaði mig á hvað vantaði. Ég sagði honum að síðasta prófið væri 15. maí og þá leit hann á dagatalið og sagði "já, þú mætir þá bara klukkan 8.30 mánudaginn 19. maí". Þá fattaði ég að hann hafði gleymt að segja mér að það væri búið að ráða mig.
Eftir það talaði hann um að textavarpið hefði áhyggjur af því að missa mig þannig að það fyrirkomulagið yrði þannig að það væri hægt að kalla mig á vakt þar líka. Mér fannst þetta hljóma alveg ágætlega og rölti alveg hæstánægð yfir í textavarp til að segja þeim tíðindin. Þá voru þau bara alls ekkert hissa og sögðu "já, við vissum að það væri búið að ráða þig, fréttum það í fyrradag..." Það er greinilegt að fréttastofan er öflug fyrst fréttirnar bárust inn í textavarp áður en ég fékk þær!
En ég er sem sagt orðin fréttamaður og það er gaman að vera til!
Sunna
21:25
Comments:
<$BlogCommentBody$>
#
posted by <$BlogCommentAuthor$> : <$BlogCommentDateTime$>
(0) comments
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli