Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

fimmtudagur, apríl 03, 2003


Tímaleysi dauðans

Nú á tímum alþjóðavæðingar, örra tækninýjunga og mikilla breytinga í lifnaðarháttum stend ég frammi fyrir vandamáli sem enginn vísindamaður hefur enn fundið lausn við. Ég er alveg að verða vitlaus á þessu og legg hér með fram tilmæli til allra þeirra, sem lesa þessa síðu, að leggja allt í sölurnar til að finna eitthvað voða tæknilegt tímalengingardót. 24 tímar í sólarhring og 7 dagar í viku eru einfaldlega ekki nóg, 4 vikur í mánuði eru einnig ansi tæpar og þegar allt er lagt saman þá er árið bara allt of stutt.

Ég er í bölvuðum vandræðum þessa dagana. Ég á enn eftir að gera skattskýrsluna, flytja framsögu og gera 3 ritgerðir áður en prófin hefjast. Í dag er skóli fram að vinnu og vinna fram á kvöld. Í fyrramálið hefst svo málstofa þar sem ég á víst að fjalla um ríkisrekstur útvarps. Úbbosí... nóttin fer sem sagt í undirbúning. Eftir málstofuna er vísindaferð í VG en ég hef ákveðið að láta grænu kommana eiga sig (enda tíma þeir ekki að gefa okkur að drekka) og leyfa pabba mínum að slaka á við að koma skattskýrslunni frá. Eftir það held ég að ég verði nú bara að fá mér bjór.

En þá eru enn 3 ritgerðir eftir. Nú þekki ég sjálfa mig alveg ágætlega og ég veit að ég á alveg örugglega eftir að skrifa þær allar nóttina fyrir skiladag. Skiladagur á tveimur þeirra er í lok apríl þannig að ætla mætti að ég hefði nægan tíma til að læra fyrir próf... en nei, ekki aldeilis. Ég verð að fylgjast með framvindunni í The Bachelorette og Survivor og öllum hinum þáttunum sem eru í sjónvarpinu. Og þegar stillimyndin verður komin á þá skelli ég bara spólu í tækið og á meðan skjáleikurinn er á daginn hangi ég á netinu til að gera eitthvað algjörlega óþarft.

Eldhúsinnréttingin á líka að fara upp á næstunni en þar sem okkur í fjölskyldunni hefur tekist að fresta þeirri aðgerð frá því í janúar þá held ég að það sé ekkert því til fyrirstöðu að fresta henni áfram. Áður en ég veit af á ég að mæta í fyrsta prófið, nýbúin að skila síðustu ritgerðinni, ekki búin að setja upp eldhúsið og ekkert búin að læra. Þegar maður lærir ekki fyrir próf þá nær maður þeim ekki alltaf. Þá verður maður víst að taka sumarpróf og þá lendir maður í bobba, sumarið styttist sem því nemur. Auðvitað ætlar maður að læra af reynslunni en allt kemur fyrir ekki og maður gefur sér ekki heldur tíma til að læra fyrir prófin. Það er því bara happa-glappa hvort maður nær þeim.

Svo fer að hausta. Snemma leiðir maður hugann að því að það sé sniðugt að vera með fyrirbyggjandi aðgerðir og kaupa allar jólagjafirnar í október til að lenda ekki í tímaþröng fyrir jólin en maður hefur alltaf eitthvað þarfara að gera en leita að jólagjöfum. Stundum getur nebbla verið mjög mikilvægt að horfa út í loftið. Jólaprófin byrja alveg nokkrum mánuðum áður en maður heldur að desember sé kominn og áður en maður veit af er aftur komin Þorláksmessa og allar jólagjafirnar eru keyptar í snarhasti 10 mínútur í miðnætti á Þorláksmessu. Þá á nottla eftir að þrífa allt, baka allt og reyna að eyða tíma í að halda andlegri geðheilsu.

Ef maður lifir jólin af þá tekur ekki betra við. Áramótin láta mann vita að maður sé árinu eldri og 3 dögum síðar er það undirstrikað með afmælisgjöf frá foreldrunum, brauðrist eða einhverju slíku í búið. Þá tekur þunglyndið við og tíminn líður án þess að maður fái nokkru ráðið.

Ég vil að tækninördar nútímans vinni bug á þessum vanda. Mig vantar lengri sólarhring þannig að ég geti gert allt sem ég þarf að gera, slakað á og fengið mér bjór og fengið nægan svefn. Mig vantar líka lengri viku vegna þess að þótt ég hafi lengri tíma yfir daginn þá veit ég að ég geri ekki allt sem ég þarf að gera og þá verð ég að fá 4 daga helgi sem gálgafrest. Það verður að bæta við nokkrum mánuðum til að maður átti sig á tímaleysinu og það á að banna annríki fyrir jól. Gjörið svo vel að leysa þennan vanda.


Sunna 13:10


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli