Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

laugardagur, maí 17, 2003


Annar í þynnku, þriðji í djammi

Eftir þurrkatíð mikla í prófunum hef ég tekið upp hraustlega drykkju á nýjan leik. Svamps-lögmálið gildir nú sem aldrei fyrr en í því felst að maður drekkur í sig eins og þurr svampur til að bæta upp fyrir þurrkatímabilið. Þetta er svona eins konar alkóhól-tengd sveiflujöfnun eins og Keynes myndi sennilega orða það. Alla vega...

Ég skellti mér í Fróða-partý í gær og þar var ókeypis bjór. Ég nennti engan veginn að fara á próflokadjamm Politicu einfaldlega vegna þess að þar var rukkað fyrir bjórinn. Auk þess var það djamm haldið í sal einhvers staðar í dreifbýlinu (Kópavogi) með aumum viðskiptafræðinemum. Maður leggur nú ekki lag sitt við slíkt hyski! Fróða-partýið var mjög skemmtilegt. Nóg var af bjór og snakki á boðstólnum og
Eva kom með nóg af tónlist, gelgjutónlist og júróvisjon, svona rétt í tilefni af því að það er aðeins vika í keppnina. Anna og Jens kíktu í partýið og seinna um kvöldið komu vinir hans Óla. Eftir partýið röltum við niður Laugaveginn og ætluðum að fara á Ara en þegar maður er seint á ferðinni er fátt um laus sæti. Stuttu seinna var haldið heim á leið eftir vel heppnað djamm.

Nú sit ég í vinnunni og sem betur fer örlar ekki á þynnku. Ef ég væri þunn núna væri ég væntanlega búin að hoppa út um gluggann eða reyna að einangra mig inni í ísskáp (sem er mjög erfitt því hann er alveg rosalega lítill) vegna þess að ég er að vinna með Þórgunni. Hún er einmitt magnari sem gengur ekki fyrir rafmagni. Helsti ókosturinn við það er að það er ekki hægt að slökkva á henni eða taka hana úr sambandi. Nú situr hún einmitt og spjallar þessi lifandis ósköp við sjálfa sig um allt og ekkert, aðallega þó ekkert. Ég held samt að ég skelli mér nú bara í bólið þegar ég er búin að vinna. Ég verð að vera klár í slaginn fyrir þriðja í djammi (=partý hjá Óskari og Kötu). Það er ekkert eins nauðsynlegt og að eyða alveg örugglega öllu sem maður gæti slysast til að hafa lært eftir prófin.

Sunna 10:15


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli