Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

þriðjudagur, maí 20, 2003


Blaðamannafundur

Haldiði ekki barasta að ég hafi skellt mér á blaðamannafund í dag! ...alein!!! Ég var send að kynna mér sjóð sem hefur verið stofnaður fyrir unga framsækna tónlistarmenn og tók með mér heljarinnar upptökutæki til að taka viðtal við einhvern gáfulegan og málefnalegan. Tækið var á stærð við sjálfa mig og ég átti í mesta basli við að halda á því. Ég skundaði á fundinn, ótrúlega kúl á því, keyrði um á RÚV bíl og alles og svo þegar ég loksins kom þangað hafði ég litla hugmynd um hvað ég átti að gera. Ég ákvað því að troða mér bara hjá Jóhönnu Margréti, sem var fréttamaður á útvarpinu en er hjá sjónvarpinu í sumar. Hún hjálpaði mér heil ósköp.

Eftir smá ræðuhöld tók ég viðtöl við nokkra merkismenn og mér fannst það ganga frekar klaufalega. Ég sagði bara eins og var að ég væri alveg splunkuný í þessu starfi og þeir hjálpuðu mér bara. Dagur B. Eggertsson sagði að hann myndi hvernig það væri að vinna með svona ferlíki og Magnús Kjartansson var ósköp næs þegar ég hélt að tækið væri að gefa upp öndina. Hljóðmælirinn ákvað að hreyfa sig ekkert þannig að ég hélt að ekkert hljóð kæmi inn á bandið og þess vegna var ég komin með mækinn næstum upp í kok á greyið manninum. En hann svaraði spurningum mínum mjög vel og var bara fínn.

Þegar ég kom aftur upp á útvarp var ég soldið stressuð um að þetta væri allt í klúðri, spurningarnar vitlausar, bandið ónýtt og þar fram eftir götunum. Hjördís fór yfir þetta með mér og mér til mikillar undrunar var hún bara mjög ánægð með þetta. Svo hófst stúdíóvinna með tæknimanni sem var svo hugulsamur að klippa út öll óþarfa hljóð í mér. Ég virka sem sagt mun öruggari með mig en ég var í raun og veru. Guði sé lof fyrir tæknibyltinguna!!!


Sunna 17:27


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli