Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

föstudagur, maí 02, 2003


Félagsauður er allra meina bót

Kennurum Háskóla Íslands finnst oft ofsa gaman að fá ritgerðir um eitthvað sem nemendum finnst ekki alveg jafn ofsa gaman að skrifa. Ég sit einmitt núna og kvelst yfir einni slíkri sem er svo flókin að ég skil ekki ritgerðarefnið. Til að bæta gráu ofan á svart á ég víst líka að skila henni í dag en mig vantar þó enn u.þ.b. 1500 orð upp á að hún sé skilahæf.

Þessi ritgerðarstúfur fjallar um merkilegt fyrirbæri sem kallast félagsauður. Ég hef verið að kynna mér efnið lítillega í dag (en aðeins lítillega) og niðurstöður rannsókna minna benda mér á að ég bý í kolvitlausu sveitarfélagi. Ég ætti að flytja hið snarasta því mér skilst að ég sé ekki nálægt því nógu ánægð með stöðu mína í hinu borgaralega samfélagi. Samborgaralegar dyggðir eru ekki nógu miklar í Reykjavík og Reykvíkingar eru bara hreint ekki nógu ánægðir með lífið og tilveruna. Það ríkir allt of mikil fjarlægð milli þeirra og lýðræðislegra kjörinna fulltrúa þeirra og það er voða voða slæmt. Það ætti nú ekki að koma að sök hjá mér því ég er ekki nema svona 5 mínútur að rölta niður í ráðhús ef mig langar að kíkja í kaffi og kökur hjá Þórólfi borgarstjóra. Hins vegar gegnir öðru máli um þá sem búa á hjara veraldar og þurfa að taka tvo strætóa til að komast í tæri við borgarfulltrúana. Ég dreg því þá ályktun að aumir Breiðhyltingar, Grafarvogsbúar og aðrir dreifarar skekki myndina mjög mikið og dragi félagsauðinn minn niður um mörg stig.

En þar sem félagsauður er uppspretta alls hins góða í heiminum verð ég að fara að leita mér að húsnæði á Seltjarnarnesi. Þar er félagsauðurinn alveg gríðarlegur eða heil 4,19 stig! Reykjavík státar ekki af nema 3,67 stigum sem er alveg hrikalegt. Þetta finnst mér mjög merkileg niðurstaða. Ég get bara engan veginn skilið hvers vegna dreifbýlistútturnar á nesinu litla og lága geta verið ánægðari með lífið en ég. Ég bý í siðmenningunni og það er stutt að fara á næsta öldurhús. Þess vegna ætti félagsauðurinn einmitt að vera meiri hjá mér því það er alkunna að hann eykst verulega með bjórdrykkju. Það getur reyndar verið að þær upplýsingar sem ég hef séu það gamlar að þær séu frá tíma ofurbúllunnar Rauða ljónsins sem Seltirningar höfðu yfir að ráða. En þótt ljónið hafi ef til vill veitt Seltirningum talsverðan félagsauð þá hefur það gefið upp öndina og það er sko alveg á hreinu að félagsauðurinn þeirra hrundi gjörsamlega við það.

Já, hann er merkilegur þessi félagsauður, auðlind skemmtanalífsins.


Sunna 14:05


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli