Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
Gamalt blogg
Heim
Dót
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
Vinir og kunningjar
Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
LovÃsa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
Linkar
Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran
Sendu mér póst!
Powered by Bravenet.com
mánudagur, maí 19, 2003
Í fréttum er þetta helst...
Fréttamannsferillinn er hafinn. Ég mætti í vinnuna klukkan hálfníu í morgun og fyrsta verkefnið var að sitja fréttafund þar sem línurnar voru lagðar fyrir hádegisfréttirnar. Ég er nú bara rétt að læra á kerfið núna, búin að lesa handbók fréttamanna og fá dagbók til að skrifa niður það sem ég á að gera. Það er alveg snilld að láta mann fá svona minnisbók þar sem ég hef gullfiskaminni og á það til að gleyma hinu og þessu. Af öðrum verkefnum mínum í morgun má nefna að ég hringdi í fíknó og á eftir á ég víst að hringja alla leið til Dubai! Þetta er merkilegt starf.
En þá að öðrum fréttum. Eurovision-vikan er hafinn og íslenski hópurinn hélt utan í gær. Logi Bergmann og Gísli Marteinn eru að fara hamförum þarna úti og höfðu samband við Hugrúnu vefstjóra í morgun þar sem þeir vildu endilega fá að blogga um það sem er að gerast úti. Ég og Hugrún drifum því í að opna síðu svo að þeir gætu deilt þessari upplifun með okkur hinum. Slóðin er
http://riga2003.blogspot.com
og ég hvet alla eindregið til að kíkja á síðuna. Eins og flestir vita eru þeir félagar alveg kexruglaðir á stundum og því er afar fróðlegt að sjá hvað þeim dettur í hug að segja. Þeir eru strax búnir að setja inn nokkra pistla sem segir allt sem segja þarf. Þeir hafa greinilega ekkert betra við tímann að gera þarna úti! En það er gaman að þessu, það vantar ekki.
En jæja, Dubai bíður!
Sunna
12:33
Comments:
<$BlogCommentBody$>
#
posted by <$BlogCommentAuthor$> : <$BlogCommentDateTime$>
(0) comments
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli