Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, maí 12, 2003


Fyndnar fréttir

Ég er svo aldreilis hlessa! Ég ákvað að kynna mér aðeins þjóðmálin áðan þar sem ég er nýbúin að taka próf um hvað hinn almenni kjósandi er alltaf að stíga í vitið og kjósa út frá skynsamlega dregnum ályktunum. Ein helsta forsenda fyrir skynsemi er þekkingaröflun þannig að ég ákvað að drekka í mig fróðleiksmola
textavarpsins. Þar rakst ég nú heldur betur á skemmtilegar fréttir sem sýna að þótt ég sé alltaf að verða klárari og klárari þá eru ekki allir landsmenn í sama flokki. Það er nú ekkert nema gott um það að segja þar sem einhverjir verða að fórna sér í þágu samfélagsins og tryggja að við höfum um eitthvað að tala svona dags daglega. Einn af þessum misvitru einstaklingum er vafalaust snillingurinn sem stal strætó!

Strætó stolið í Breiðholti
Strætisvagni var stolið frá biðstöðinni við Arnarbakka i Breiðholti í Reykjavík rétt upp úr miðnætti. Bílstjórinn hafði brugðið sér í kaffi í 4-5 mínútur en á meðan var vagninum stolið og ekið burt. Hann fannst nokkru síðar í gangi á bílastæði við Dvergabakka, en þjófurinn var á bak og burt. Enginn farþegi var í vagninum.


Vá maður!!! Hversu vitlaus þarf maður að vera til að stela strætó??? Hmmm... ekkert svo mjög... sérstaklega ekki þar sem maður hlýtur að komast upp með það. Ég meina, það er ekki eins og þessir stóru appelsínugulu, 40 sæta og 40 milljón króna bílar séu mjög áberandi... hmmm... Jú, kannski. Það gæti vel verið að það hafi verið risastór auglýsing frá Framsóknarflokknum utan á honum. Það taka nú allir eftir því þegar Halldór Ásgrímsson tekur allt í einu upp á því að brosa. Sennilega hefur verið mynd af Dóra brosmilda á bílgarminum og þess vegna forðaði þjófurinn sér. Hann hefur séð að sér og áttað sig á staðreyndum málsins. Ef þjófurinn hefur hins vegar gert þetta bara svona upp á djókið þá hefur það virkað á mig. Ég held að þessi stuldur jafnist bara næstum því á við þegar einhverjir gaurar rændu hraðbanka hérna um árið... já, bara alveg heilum hraðbanka!

Næsta frétt sem vakti furðu mína var um merkilegt athæfi starfsmanna DHL.

DHL eyðilagði utankjörstaðaatkvæði
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður ætlar að óska eftir lögreglurannsókn á því hvers vegna umslög utan um utankjörfundaratkvæði frá Tékklandi voru rifin upp og límd aftur af DHL hraðsendingarþjónustunni. Forsvarsmaður DHL á Íslandi segir það reglu hjá fyrirtækinu að opna allan póst þeirra sem ekki eru með fastan samning við fyrirtækið af öryggisástæðum. Atkvæðið barst kjörstjórninni með öðrum utankjörfundaratkvæðum og segir formaður yfirkjörstjórnar greinilegt að umslögin tvö utan um atkvæðið hefðu verið rifin upp. Þeim hefði síðan verið lokað aftur með límbandi sem merk var DHL.


Hversu vitlaus þarf maður að vera til að opna kjörseðil í öðrum tilgangi en að kjósa sjálfur??? Sú staðreynd að lýðræðislegar kosningar eiga að vera leynilegar gefur til kynna að enginn eigi að geta fylgst með hvað maður kýs og að atkvæði verði ekki talin fyrr en kjörstöðum er lokað. Það á að gerast á þar til gerðum stöðum og undir sérstöku eftirliti. Síðast þegar ég vissi hafði DHL ekki umboð til að gegna þessu eftirliti. Hvað ætli hafi vakið fyrir þeim sem opnaði kjörseðlana? Leita að miltisbrandi eða hvað??? Já, eða kannski var starfsmaðurinn bara að tékka hvort viðkomandi kjósendur hefðu skilað auðu og ætlaði þá að nýta sér kjörseðilinn...

Já, sumir eru bara ekki eins vel gefnir og aðrir...

Sunna 14:03


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli