|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, maí 07, 2003 |
|
|
|
Loksins loksins...
Já, loksins er Eva byrjuð að blogga á nýjan leik. Það verður eflaust fróðlegt að fylgjast með hvað drífur á daga hennar þar sem hún eyðir nú öllum stundum sínum á hinum magnaða vinnustað RÚV. Þar vinnur hún (og reyndar ég líka stundum) með alveg hreint ótrúlegu fólki sem á köflum er alveg snarbrenglað. Dæmi um vitleysingana þarna eru:
- Laukurinn - það er Lúlli. Stundum... nei, djók, alltaf óskar maður þess heitt að það sé volume-takki á honum... já jafnvel bara on/off takki.
- Haffi - besta setning sem ég hef fengið frá honum er "Sunna mín, ég myndi hjálpa þér við þetta ef ég kynni á kerfið..."
- Sigríður Gróa - Gróu-nafnið fer henni mjög vel. Sigríður hefur mjög gaman að því að segja sjúkrahússögur, veikindasögur, slúðursögur, kjaftasögur, gamlar sögur, nýjar sögur....
- Lalli - fyrrum landsliðsmaður í fótbolta, kexruglaður á stundum, stundum þunnur, alltaf í símanum, alltaf að stríða manni... en sér til þess að aumir laugardagsstarfsmenn fái jólagjafir og páskaegg nr. 6
- Stína - frábær kelling sem er alltaf í stuði!
- Sigga - hún fær titilinn Mrs. Majones... segir allt sem segja þarf...
- Gunnar Alexander - a.k.a. Gunnar Pabbi. Áhugi hans á skemmtanalífi og strákamálum okkar Evu nær ekki nokkurri átt, hann lætur eins og hann sé pabbi okkar!
- Steinunn - ...blátt blóð í æðum... hún heldur því fram að hún sé konungborin, já, gott ef hún hefur ekki bara rétt fyrir sér...
- Þórgunnur - Þynnkumagnarinn mikli! Hún talar svona 200 desíbelum fyrir ofan hávaðamörk og það þýðir ekkert að reyna að koma í veg fyrir að hún tali með því að tala ekki við hana. Þá talar hún bara við sjálfa sig...
- Ása - Hún og Þórgunnur saman.... vá maður...
Fyrir utan þetta fólk eru nottla fleiri sem vinna þarna... en þeir flokkast undir nokkurn veginn eðlilega flokkinn... Já, RÚV er merkilegur vinnustaður.
Sunna 23:06
|
|
|
|
|
|
|