Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
Gamalt blogg
Heim
Dót
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
Vinir og kunningjar
Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
LovÃsa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
Linkar
Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran
Sendu mér póst!
Powered by Bravenet.com
sunnudagur, maí 11, 2003
Nammilaus vika nr. 1
Mikið kvalræðistímabil í mínu lífi er hafið. Á þriðjudaginn síðasta gaf ég sjálfri mér loforð um að héðan í frá yrði aðeins einn nammidagur í viku í stað sjö slíkra sæludaga. Laugardagur varð að sjálfsögðu fyrir valinu og er þá leyfilegt að borða sælgæti eins og maður getur í sig látið. Aðra daga vikunnar er það alveg stranglega bannað. Þá fer nammilöggan í fýlu við mig og ég vil ekki að það gerist... afleiðingarnar gætu nebbla orðið alvarlegar...
Alla vega, fyrsti offisjal nammidagurinn var í gær. Hann byrjaði þannig að Óli leyfði mér að fá stórt rís (af því að ég á það alltaf skilið), svo fórum við á kosningaskrifstofurúnt þar sem ég mátti smakka veitingar hjá öllum flokkunum. Samfylkingin og Frjálslyndi flokkurinn báru þar sigur úr bítum með glæsilegum veitingum. Um daginn fékk ég mér pínulítinn lakkrís heima (alveg merkilega lítinn miðað við að ég mátti hakka í mig) og svo fór ég í leikhús um kvöldið og fékk mér smá hlaup þar. Hins vegar gleymdi ég að borða hlaupið í leikhúsinu þannig að ég ætlaði að borða það yfir kosningasjónvarpinu heima hjá Óla. En það klikkaði nú heldur betur. Ég fékk mér eitt hlaup og svo ekki söguna meir! Ég gleymdi að nýta nammidaginn!!!
Ég er hundfúl út í sjálfa mig fyrir þennan tossaskap. Í dag er sunnudagur og ég má ekki borða nammi fyrr en á laugardaginn!!! Að ég skuli leggja þetta á mig er hreint óskiljanlegt. En nammi er óhollt, um það verður víst ekki deilt. Og sælgætislöggan gæti gripið til harkalegra sælgætisrefsinga ef ég svíkst undan þannig að ég, löghlýðinn borgari, þori einfaldlega ekki að taka sénsinn.
Niðurstaðan er því þessi:
Fyrsta heila nammilausa vikan er hafin og þar sem strangt eftirlit er með brotum á ályktunum og reglugerðum um sælgætisát mun ég að öllum líkindum standast allar óhollar freistingar af ótta við þungar refsingar.
Þegar maður vinnur bug á fíkn leitar maður oft út í öfgar á öðru sviði. Ég hef því ákveðið að í stað þess að falla í freistni og fá mér eitthvað óhollt ætla ég að leita frekar í ósiðlegar freistingar. Þannig get ég sennilega dreift huganum frá næstu sjoppu.
Sunna
17:14
Comments:
<$BlogCommentBody$>
#
posted by <$BlogCommentAuthor$> : <$BlogCommentDateTime$>
(0) comments
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli