Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

þriðjudagur, maí 06, 2003


Náttföt og grænir sokkar

Nú er komið að fréttum af atburðum dagsins. Sem fyrr eru prófin í algleymingi og þá er nú alltaf spennandi að sjá hverju Sunna tekur upp á þar sem hún verður seint þekkt fyrir að vera iðin við lærdóm og lestur. Dagurinn hefur farið í ýmsa skemmtilega hluti sem tengjast náminu nákvæmlega ekki neitt. Maður fær alltaf þörf fyrir að gera eitthvað ótrúlega óþarflegt þegar samviskan segir manni að opna bók. Þá friðar maður samviskuna með því að sannfæra sjálfan sig um að það séu nú til þarfari hlutir en lestur og þekkingaröflun. Ég er alveg snillingur í þess háttar sjálfs-sannfæringu.

Það sem ég hef afrekað í dag er að:

  • uppfæra heimasíðuna mína með nýju útliti sem er í stíl við bloggsíðuna
  • skoða allt mögulegt og ómögulegt á netinu
  • setja í þvottavél (hefur aldrei verið eins skemmtilegt og í dag)
  • fara í sturtu (óumdeilanlega mikið þarfaverk)
  • tala við Jóhönnu ammlisbarn tvisvar í síma og á msn
  • taka fram hjólið mitt því hreyfing er allra meina bót á tímum mikils nammiáts (næsta skref verður að nota hjólið...)

Auk þess hef ég reynt að lesa svolítið um hádegisverðinn sem er víst aldrei ókeypis en það hefur ekki gengið mjög vel. Þrátt fyrir að bókin sé nú með þeim skemmtilegri sem ég á að lesa fyrir vorpróf þessarar annar þá hefur mér tekist að sofna tvisvar og leggja hana frá mér svona 10 sinnum. En helsta afrek dagsins er að hafa tekist að fara ekki úr náttfötunum í allan dag (ef frá eru taldar um 15 mínútur sem ég var í heitri sturtu). Ég hef spókað mig um í náttfötum og fagurgrænum fótboltasokkum í allan dag. Og það sem meira er, ég hef ekki borðað neitt nammi!!! Ótrúlegt en satt...


Sunna 19:59


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli