|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, maí 22, 2003 |
|
|
|
Riga eftir sólarhring
Góðir hálsar, ég held að ég sé ekki búin að segja ykkur frá því að ég er á leið til Riga á morgun. Eða var það kannski? Eníveis... góð vísa er aldrei of oft kveðin. Riga á morgun, júróvisjon á laugardaginn. Vúhúhú!!! Verið er að vinna hörðum höndum að því að redda júróvisjonpartýi í Riga, vonandi tekst það. Í vinnunni er veðmálspottur kominn af stað (sörpræs sörpræs) og ég og Eva tókum að sjálfsögðu þátt. Það var okkar síðasta júróvisjontribjút áður en við förum út að styðja Birgittu þegar hún sigrar heiminn. Við Eva teljum okkur vera sérfræðinga í júróvisjon (þótt ég hafi reyndar sárasjaldan rétt fyrir mér í spögúlasjónum um hver vinnur eða hver tapar) og ég spurði Evu hvað hún ætlaði að giska á mörg stig (veðmálið gengur sem sagt út á að giska á hvað Ísland fær mörg stig). Sjálf hafði ég strax fengið ákveðna stigatölu í hugann og merkilegt nokk! Eva var með sömu tölu. Við gerðum því með okkur díl um að ég notaði töluna sem kom næst upp í hugann hjá henni og hún notaði töluna sem við vorum báðar með og svo splittum við pottinum. Þannig aukum við möguleikana á að vinna. Við erum svo sniðugar.
Annars hef ég einu sinni haft rétt fyrir mér. Það var árið 1997 þegar Katarina and the Waves unnu með lagið Love shine a light. Það var reyndar í eina skiptið sem ég spáði ekki fyrir um sigurvegarann "opinberlega" og ég er að spögúlera að gefa því ekki upp hvað tilfinningin segir mér í ár. Ég hef ákveðna stigatölu í huga, ákveðið sæti í huga en ég segi ekki annað en að Birgitta á deffinettlí eftir að sigra heiminn. Á því leikur enginn vafi. Stelpan er mjög sæt, hún kemur vel fyrir og á örugglega eftir að fá nokkur stig út á það (alla vega frá þessum örfáu gagnkynhneigðu karlmönnum sem horfa á keppnina).
Og þá að samsæriskenningu í pólitíkinni...
Dabbi ætlar bara að hætta sem forsætisráðherra eftir rúmlega ár! Ég er með kenningu. Nú tapaði Sjálfstæðiflokkurinn ansi miklu fylgi í síðustu kosningum, því er ekki hægt að neita. Hins vegar tapaði Framsókn ekki eins miklu og margir hefðu búist við. Mín tilgáta er sú að þetta sé mjög strategískt múv hjá Dabba. Hann vill að Dóri taki við þannig að þjóðin stefni beint til andskotans og þá sjá allir að það er þó skömminni skárra að hafa Dabba við stjórnvölinn. Niðurstaðan verður því að Sjálfstæðisflokkurinn nær sínu fyrra fylgi og Framsókn tapar... eða deyr út jafnvel! Er þetta fjarstæðukennd tilgáta? Ég held ekki...
Sunna 17:17
|
|
|
|
|
|
|