Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

föstudagur, maí 09, 2003


Stökkbreyttir menn eru merkilegir menn

Ég fór að sjá
X-men í gær með Óla og það var hin fínasta skemmtun. Í fyrsta skipti tókst okkur að ramba á góða mynd í bíó. Þótt myndin sé óttaleg vitleysa og framúrstefnuleg með meiru þá var gaman að henni og Wolverine var algjört hunk of a man! Ég myndi sko ekki fúlsa við honum... einkum og sér í lagi ef hann gæti látið hnífa skjótast út um hnúana á sér eins og hendi væri veifað.

Sem betur fer tókst mér að njóta myndarinnar þrátt fyrir að hafa verið ómöguleg allan daginn sökum hrikalegrar vöðvabólgu og bakverkja. Pabbi kom mér til bjargar og lét mig fá voltaréne rapid sem svínvirkaði alveg hreint. Verkirnir hurfu eins og skot og mér leið alveg stórvel. Að auki lét mamma mig fá afsláttarkort í kínverskt nudd og hitapoka til að mýkja á mér bakið. Ég vona að þetta virki. Það er fátt eins slæmt að sitja í prófi og geta ekki skrifað fyrir verkjum. Það sem kemur næst á eftir þessu er sennilega að sitja í prófi og geta ekki skrifað neitt sökum vankunnáttu. Það gæti hins vegar hæglega orðið raunin ef ég hætti ekki að hanga á netinu og fer að læra. Kannski ég reyni það núna...

Sunna 13:15


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli