|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, júní 18, 2003 |
|
|
|
Af fjölskyldum og kjúklingum
Og þá er fríið liðið, því er nú #$%&!#! verr og miður. En því var nú samt vel varið, því er ekki að neita. Eftir langan vinnudag á mánudaginn skellti ég mér á dúndur leikinn Leiknir-Árborg og hitti þar þrjá skemmtilega rugludalla. Þetta var að sjálfsögðu ekki fyrr en ég var búin að hlusta á lýsinguna af KR-Valur þar sem KR-ingar sigruðu eins og við var að búast.
Eftir leikinn var ákveðið að tími væri kominn til að djamma. Við fórum heim til mín og fyrsta partý post kitchen tímabilsins varð að veruleika. Það lukkaðist svo ljómandi vel að á tímabili varð öflugt eldhúspartý í nýja eldhúsinu. Það var svo vinsælt að allir partýgestir voru inni í eldhúsi. Nýi hanastélshristarinn var prófaður og hann virkar bara alveg stórvel.
Síðar um kvöldið fjölgaði í partýinu. Gaurinn sem gubbaði á sögukennarann kom og hann virkaði nú bara hinn mesti sómapiltur þrátt fyrir að eiga svona skuggalega fortíð. Um miðja nótt fór að gæta nokkurs hungurs meðal partýgesta. Þá var nú heppilegt að ég bý í 101. Við röltum því bara í bæinn til að fá okkur aðeins í svanginn. Nonni varð fyrir valinu enda er alkunna að sósan hans er best.
Á þjóðhátíðardaginn var haldið í bæinn. Vúhú, það rímar. Þar skiptust á skin og skúrir. Ítrekaðar tilraunir voru gerðar til að kaupa kandífloss en fæstir vildu taka við VISA-kortinu mínu. Valsararnir vildu þó alveg taka við því en þá var pappírinn akkúrat búinn í posanum. Valsaragreyin eru ekki mjög skynsamar lífverur að því er virðist og datt ekki í hug að hafa vararúllur í tjaldinu. Ekkert varð því af kandífloss kaupum.
Við gáfumst upp í rigningunni og fórum heim með mömmu og pabba, Stjána, Zulemu, Kára, Stellu og Símoni í vöfflur. Stella og Símon tóku Óla í sátt og Stella lærði meira að segja að segja nafnið hans. Eftir vöffluátið rúlluðum við svo í Breiðholtið og duttum þar beint inn í annan fjölskyldupakka. Þar var verið að taka kjúklinginn út úr ofninum og öll fjölskylda Óla var mætt á svæðið. Okkur var boðið að borða og kjúllinn bragðaðist afbragðsvel. Eftir matinn fórum við í smá fótbolta og ég vann! Vúhúhú!
Þjóðhátíðardeginum lauk svo með stæl. Ég fékk kandífloss seint og um síðir en það er þó betra að fá það seint heldur en alls ekki. Að auki fékk ég ís en mér skilst að nú sé syndadögum lokið. And#$%&%!$!#%!!!
Þá er það bara kandífloss að ári liðnu...
Sunna 20:23
|
|
|
|
|
|
|