|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
sunnudagur, júní 08, 2003 |
|
|
|
Bjór í kvöld
Rosalega er skrýtið að vera að vinna í textavarpinu og hafa ekkert að gera. Venjulega er ég alltaf á eftir með allt en nú hef ég bara ekkert að gera. Ég er búin að vera svo dugleg í morgun að ég kláraði allt sem ég átti að gera fyrir hádegi. Ég kann eila soldið illa við mig svona aðgerðalaus, ég hlýt að hafa gleymt einhverju.
Ammælisbarn dagsins er Eva. Hún fagnar í dag 23 ára ammæli, til hamingju með það! Í tilefni dagsins býður hún í kökuboð í kvöld. Gott ef það leiðir ekki bara til bjórdrykkju síðar í kvöld þar sem það er einmitt frídagur á morgun. Já, það er almennur frídagur á morgun og meira að segja vinnualkinn ég á frí. Já, Salómon, ef það er einhvern tíma tilefni fyrir sjúss...
Annars hef ég eytt morgninum í að hlera sögur af ónefndum starfsmanni RÚV. Stundum getur verið óendanlega gaman að vera fluga á vegg þegar þessi tiltekni starfsmaður er á vakt og það er líka mjög gaman að heyra sögur af ruglinu sem hann tekur stundum upp á.
Sagan sem ég heyrði í morgun var að vinur þessa ónefnda starfsmanns hefði verið að fara til útlanda. Starfsmanninum datt þá í hug að vera soldið fyndinn og hringdi í Flugleiðir. Hann sagði að vinurinn væri alki og því mætti ekki gefa honum neitt áfengt að drekka því annars væri voðinn vís. Og fyrst hann var nú á annað borð að hringja þá ákvað hann að huga að matarræðinu líka og pantaði grænmetisrétt fyrir vininn. Vinurinn skildi víst ekkert í því af hverju drykkirnir, sem hann pantaði, komu aldrei...
Önnur saga, sem ég heyrði, var að starfsmaðurinn hefði fundið grein á netinu "How to hook up in Minneapolis". Þar sem einn vinur hans var víst staddur í Minneapolis þótti starfsmanninum nokkuð gagnlegt að senda honum greinina. Hann fann því út á hvaða hóteli hann væri og herbergisnúmerið líka. Síðan faxaði hann greinina í lobbýið á hótelinu "To Mr. Baldursson, room 244". Mr. Baldursson sagði víst að hann hefði aldrei fengið eins mikið glott frá dömunum á hótelinu eins og þá.
Ég er nú bara fegin að hafa aldrei lent hrekkjum þessa manns.
Sunna 11:14
|
|
|
|
|
|
|