Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
Gamalt blogg
Heim
Dót
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
Vinir og kunningjar
Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
LovÃsa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
Linkar
Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran
Sendu mér póst!
Powered by Bravenet.com
sunnudagur, júní 22, 2003
Ég er orðin gömul
Ég gerði merkilega uppgötvun í gær. Ég er orðin gömul og hef ekki lengur hæfileika til að sameina vinnu og djamm. Það hefur reyndar gengið ágætlega að vera þunn í vinnunni á laugardögum í vetur en það er ekki svo mikið mál þegar maður þarf að vera við símann frá 9 til 12 og lítið er að gera. Auglýsingarnar eru auðveldari en textavarpið.
Þessa helgina er textavarpsvakt. Það þýðir að laugardag og sunnudag sit ég í 12 tíma fyrir framan tölvu, og það sem meira er, ég er að vinna nánast allan tímann. Smá dauður punktur upp úr kl. 2 ef ekkert er að gera í íþróttunum en að öðru leyti er dagurinn hlaðinn verkefnum.
Þar sem mér var boðið í útskriftarveislur í gær ákvað ég að vera sniðug og biðja Jóhönnu um að leysa mig af fyrir hádegi í dag svo ég gæti nú aðeins náð að hvíla mig eftir djammið. Ég vann í 12 tíma í gær og fór svo í veislu, fyrst leit ég við hjá Önnu og svo fór ég í partý til Bjössa. Hjá Bjössa vantaði sko ekki áfengið. Þetta var eitt brjálaðasta fjölskyldupartý sem ég hef lent í. Foreldrarnir, frændurnir og frænkurnar voru í brjáluðu stuði og mesti djammarinn var amman, hún söng og dansaði eins og hún ætti lífið að leysa.
Mig langaði til að djamma en ég fann fljótt að áfengið fór ekki vel í mig. Ég varð alveg óstjórnlega þreytt og langaði helst í rúmið. Mér tókst þó að halda mér vakandi og söng með (alltaf þegar ég kunni textann), enda var fjölskyldan hans Bjössa búin að koma upp hljómsveit í stofunni, Bjössi og bróðir hans spiluðu á gítar og pabbi þeirra tók fram skemmtara og spilaði undir. Allar skátabækurnar komu að góðum notum og það var sannkölluð íslensk útilegustemning.
Sumir drukku mun meira en aðrir og ég gæti haft fjölmörg orð um að sumir hafi verið ofurölvi, jafnvel æluölvi þegar heim var komið. En ég held að ég tali ekki um það hér. Úbbs... þetta gæti víst gefið ýmislegt til kynna... hmmm...
Alla vega, ég er orðin gömul. Síðast þegar ég gerði tilraun til að djamma eftir 12 tíma textavarpsvakt endaði það ekki gæfulega. Ég sofnaði værum blundi, en þó ekki á stað þar sem þess var óskað... Og ekki orð um það meir. Ég verð að vera úthvíld áður en ég fer að djamma, það virðist vera nokkuð ljóst.
En þá að öðru máli. Það hefur verið rífandi þátttaka í kosningunni um Jón meðaljón kommentara. Ég ætla að leyfa henni að standa soldið lengur. Núverandi niðurstaða er merkileg og ég furða mig mikið á því að ekkert bólar á honum. Maður hefði nú haldið að menn vildu svara fyrir sig. Jón, gerðu það, segðu okkur hvort þetta er satt eða ekki. Hver ertu? Ertu hvalur?
Sunna
15:09
Comments:
<$BlogCommentBody$>
#
posted by <$BlogCommentAuthor$> : <$BlogCommentDateTime$>
(0) comments
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli