Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

fimmtudagur, júní 05, 2003


Hundur prumpar á Siglufirði

Fokkedí fokk! Þessi dagur er búinn að vera tímahraksdagur frá helvíti. Ég mætti í vinnuna klukkan 1, alveg tilbúin fyrir fréttafund. Fundurinn átti að byrja um 1 leytið. Um tuttugu mínútur yfir 1 segir vaktstjórinn við mig "Sunna, þú ferð á fréttamannafund út af þessu máli. Hann byrjar klukkan 13:30." Ég fór nottla á taugum og brunaði af stað. Þegar ég kom til baka gerði ég ágætis frétt en þegar ég ætlaði að fara að lesa hana inn á band þá var mér falið annað verkefni. Þegar ég hafði loksins tíma til að lesa fréttina þá var komið of nálægt fréttatímanum og önnur mikilvægari mál urðu að komast inn í stúdíó á undan mér. Ég lagði því fréttina bara til hliðar og sneri mér að öðru verkefni.

Hitt verkefnið var að fara á annan fund. Ég þurfti að fá yfirlit yfir tilboð sem voru opnuð í Kárahnjúkavirkjun, ótrúlega spennó! Ég brunaði á fundinn og beið eftir að honum yrði slitið til að ég gæti fengið yfirlitið. Síðan brunaði ég beina leið aftur í Efstaleitið og byrjaði að skrifa frétt. Sú frétt virtist ætla að fara sömu leið og sú fyrri og ég var alveg að falla á tíma. Ég þurfti að bíða ógeðslega lengi eftir að stúdíó losnaði og komst loks að 2 mínútur í 6. Þá var ég orðin svo stressuð að ég gat ekki komið nokkru rétt út úr mér og allt var í fokki. Ég náði að klára pistilinn mínútu yfir 6 en þá var fréttatíminn byrjaður. Ég hljóp og gekk frá fréttinni og viti menn, þetta náðist! Fyrsta alvöru fréttin mín, ekkert ómerkilegt viðfangsefni eins og hundur prumpar á Siglufirði.


Sunna 18:54


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli