|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, júní 19, 2003 |
|
|
|
Hver er Jón?
Nú er ég orðin soldið forvitin. Eins og lesendur vita hef ég þetta líka fína kommentakerfi. Sumir lesendur láta það yfirleitt eiga sig en aðrir hafa notað það af og til mér til mikillar ánægju. Sumir nota skrýtin nöfn eins og t.d. Strumpurinn, sem er í sjálfu sér mjög fyndið því viðkomandi lítur nákvæmlega engan veginn út eins og strumpur, hann er hvorki lítill né blár. En hvað um það...
Hins vegar er einhver einstaklingur sem hefur kommenterað hjá mér sem ég hef ekki hugmynd um hver er. Sá kallar sig Jón og ég er búin að ganga úr skugga um að þetta sé ekki Jón Ágúst, vinur minn. En hver er þessi drengur? Hann skilur hvorki eftir sig slóð á heimasíðu, blogg né ímeil þannig að ég get ómögulega komist að því hver viðkomandi er.
Þessi meðaljón hefur tvívegis kommenterað hjá mér. Fyrra skiptið var undir færslunni Fyndnar fréttir og síðara skiptið var núna um daginn þar sem hann skaut á Óla undir eldhúsfærslunni.
Nú skora ég á viðkomandi að segja mér hver hann er. Uppi eru kenningar um að viðkomandi sé mikill maður vexti, jafnvel á stærð við hval. Einnig hefur komið upp sú kenning að þessi meðaljón, sem ekki þorir að skilja eftir sig slóð, sé hafsjór einskis nýtra fróðleiksmola (einkum búi hann yfir miklum upplýsingum um mig). Þriðja kenningin sem upp hefur komið er að maðurinn sé óhemju leiðinlegur og finnst mér það mjög eðlileg ályktun þar sem hann gefur manni ekki færi á að komast að því hvort hann sé skemmtilegur eður ei. Fjórða kenningin lýtur að afbrigðilegum áhugamálum. Nú þykir það afbrigðilegt með eindæmum að vera svo háður netinu að maður sé beinlínis upptekinn allan daginn við að lesa ómerkilega pistla eftir mismerkilegt fólk. Gæti verið að það sé raunin í þessu tilviki?
Jón meðaljón, hver er það? Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að láta mig vita hver þessi mistery man er. Þangað til annað fæst sannað fær maðurinn nafnið meðalJón.
Sunna 13:08
|
|
|
|
|
|
|