Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

laugardagur, júní 14, 2003


IKEA-ferð, taka tvö

Ég er búin að afreka margt í dag. Í morgun mætti ég í vinnu klukkan 9. Ég fékk bílinn hans
Óla svo að ég þyrfti ekki að labba. Það gekk svo sem ágætlega... eða allt þar til ég tók upp á því að keyra á móti umferð. Ég var aðeins of þreytt, hefði sennilega haft gott af því að A) sofa aðeins meira, B) fá mér aðeins að borða og C) hafa hugann aðeins meira við aksturinn. Það gerðist nú ekkert slæmt þótt ég hefði aðeins farið á móti umferð, ég kippti því nú bara í liðinn með því að koma mér yfir á réttan vegarhelming. Enginn skaði skeður.

Í vinnunni var ekkert að gera (there is a God...). Ég og Guðrún Svava ákváðum að vera alveg ótrúlega sniðugar og byrjuðum að ganga frá um ellefuleytið. Það þýddi að við vorum búnar að öllu rétt rúmlega tólf. Þá flýtti ég mér aftur í Breiðholtið að skila bílnum og tókst að halda mig á réttum vegarhelmingi allan tímann. Svona er maður fljótur að læra.

Eftir hangs og dútl í Breiðholtinu í soldinn tíma var stefnan sett á Holtagarðana þar sem IKEA-ferð nr. 2 var farin með Óla. Við náðum ekki að slá brautarmetið í þetta sinn en í staðinn afrekaði ég að kaupa mér efri skápa í eldhúsið, eldhúsborð og sogrör í kokteilana og bústið sem verður í öll mál þegar eldhúsið verður 100% tilbúið. IKEA-verðlaunin voru ís með dýfu.

Því næst var brunað vestur í bæ með eldhúsið. Þá tók við mikil líkamsrækt, þ.e. að bera herlegheitin upp í penthás íbúðina mína hjá Héðni með gemsann. Það voru átök en allt hafðist þetta nú á endanum og burðarverðlaunin voru pizza frá því í gær, pepsi og nammi (af því að það er nú einu sinni nammidagur). Ég hef komið sjálfri mér mjög á óvart í nammiátinu. Þar sem ég borða nammi svona sjaldan þá virðist ég hafa minna þol fyrir því. Mér finnst það ofsalega leiðinlegt þar sem ég hef aðeins einn dag í viku til að belgja mig út og þegar hann loksins kemur þá hef ég mjög takmarkað pláss. En kannski er það mér fyrir bestu.

Slökun, pizzu- og nammiát stóð yfir í um klukkutíma. Þá þurfti ég aftur að mæta í vinnuna og þar er ég enn, alein og yfirgefin. Mér finnst þetta ekkert sniðugt. Sjónvarpsvaktin er búin og Lovísa nennti ekki að bíða hérna með mér, skil ekkert af hverju. Enginn fréttamaður er á vakt í útvarpinu og ég hef ekkert að gera. Ég held að ég sé búin að skoða allt sem hægt er að skoða á netinu og hef ekkert að gera annað en að reyna að gera þetta blogg lengra. Næsta skref verður sjálfsagt að bora í nefið og kroppa kusk úr naflanum. Ég hvet lesendur eindregið til að benda mér á skemmtilegar síður á netinu sem mér gætu hafa yfirsést á vafri mínu. Kommentakerfið svínvirkar!

Þegar ég fer heim á eftir ætla ég að reyna að mála soldið og fá pabba svo til að festa upp fyrir mig efri skápana á morgun. Þá verður hátíð í bæ og hver veit nema ég eldi.

Sunna 20:03


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli