Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, júní 23, 2003


Stórkostleg ummæli

Jæja, þá er ég mætt í vinnuna á ókristilegum tíma. Ég mætti klukkan 6 sem er um hánótt, eins og flestir ættu að vita. Allir glöggir menn vita að dagurinn byrjar ekki fyrr en klukkan 11. Ég spái því að ég hnígi niður í rúmið um leið og ég kemst heim til mín eftir hádegið.

En þar sem ég er nú einu sinni komin á ról þá er ég búin að kíkja aðeins á netið og á blogghringnum mínum fann ég alveg
frábær ummæli um sjálfa mig. Það er nú svo sem ekkert skrýtið að talað sé um mig á þessum nótum enda er ég alveg frábær manneskja, eiginlega er það bara furðulegt að fleiri skuli ekki birta skoðanir sínar á þennan hátt.

"Einn mesti drykkju- og tónlistarsérfræðingur landsins er tvímælalaust Sunna. ... Helsti mannkostur hennar er óendanlega góður tónlistarsmekkur sem er mjög ólíkur þeim sem Nonni Önd hefur..."

Já, sá sem fer svona fögrum orðum um mig er enginn annar en geðveiki vélritunarkennarinn, Anton Karl Ingason. Anton má nú eiga það sjálfur að hann hefur fínan tónlistarsmekk. Þegar ég fór í ammælið hans í apríl brá mér nokkuð þegar ég heyrði tónlistina sem var spiluð. Þar hélt ég að hann hefði komist yfir ofurdiskana Pottþétt Gelgja (biðst afsökunar á að síðan hefur ekki verið uppfærð lengi). Svo var þó ekki heldur er hann bara svona afskaplega mikill smekkmaður.

Fyrir þá sem ekki þekkja til má benda á að Anton er vinur Óla. Þeir þykja óhemju líkir á stundum og erfitt getur verið að greina í sundur hvor er að tala. Helsta afrek þeirra er hið magnþrungna sköpunarverk um Valla vélritunarmeistara, sem er bókmenntaafrek mikið og ég yrði ekki hissa þótt þeir fengju einhvern tíma bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í flokki magnþrunginna spennusagna. O sei sei já...

Sunna 06:49


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli