|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, júní 27, 2003 |
|
|
|
Vegir liggja til allra átta... þangað sem gott veður er
Strumpurinn og Dagný fá plús í kladdann fyrir að hafa leyst blogger-vandann. Nú á ég bara eftir að átta mig á hvernig er hægt að laga þennan útlitsgalla en blogger-dúddum finnst víst ákaflega smekklegt að hafa allan texta vínrauðan og á bold. Smekksatriði, ef til vill. Einnig þarf ég að tékka á statusnum á þessu kommentakerfi, en það virðist ekki fúnkera alveg sem skyldi í augnablikinu. Kannski ég þurfi bara að skipta um kerfi. Hvað ætli Jón kommentari segi við því?
Síðasta morgunvaktin er liðin og ég er búin að leggja mig. Fékk þó ekki að sofa eins lengi og ég hefði viljað því eitthvað illmenni ákvað að nú væri svefntíminn liðinn. Hann dró mig því upp á eyrunum og dröslaði mér á fætur. Það er ekkert nema argasti glæpur.
Á morgun er ein auglýsingavakt og eftir það á ég frí þangað til eftir hádegi á mánudag!!! Magnað! Hugmyndin er að fara út úr bænum í útilegu og fær Veðurstofa Íslands að ráða förinni. Þegar er farið að huga að hvað skal tekið með og eru hlutir á borð við tjald, svefnpoka, grill, bjór og nammi þegar komnir á lista. Stuð!
Sunna 18:15
|
|
|
|
|
|
|