|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, júlí 17, 2003 |
|
|
|
Bara þunglyndur?
Nýi fjölskyldumeðlimurinn á Hofsvallagötunni, Bara í trévatni, virðist vera þugnlyndur. Ég hef reyndar ekki hitt hann síðan í hádeginu en þá var hann dálítið þungur á brún. Við héldum reyndar að hann væri bara pínulítið feiminn við okkur, kominn í nýtt umhverfi og svona. Svo fóru Óli og Anton á Hofsvallagötuna í dag til að heilsa upp á hann og þá var hann víst eitthvað daufur í dálkinn, greyið.
Fyrir þá sem ekki átta sig, er Bara gullfiskur. Hann býr í vatni og er tré í vatninu hans, sem sagt, hann býr í trévatni. Eins og tíðkast hefur lengi á Íslandi er Bara kenndur við heimili sitt, sem sagt Bara í trévatni. Ég verð að viðurkenna að lundarfar hans kemur mér mjög á óvart. Hann býr í mjög fallegu umhverfi, allt í kring um hann er fullt af vatni og gullfiskar kunna almennt mjög vel við vatn. Það fyrsta sem við Óli gerðum þegar flutningum var lokið var auðvitað að gefa honum að borða. Alltaf sniðugt að fagna merkum áfanga með veislu. En Bara var eitthvað dapur og neitaði að borða. Kannski er hann í megrun, hver veit.
En það merkilegasta er að hann skuli ekki brosa soldið og hlæja þegar hann býr með svona stórskemmtilegri manneskju eins og mér. Óli er líka á Hofsvallagötunni á hverjum degi og ekki er það nú slæmt, enda er hann alveg ákaflega magnaður maður. Ég bara skil ekki að Bara skuli ekki gleðjast yfir því að fá svona góðan félagsskap eins og ég og Óli erum. Ég meina, hverjum finnst við ekki skemmtileg???
Sunna 20:27
|
|
|
|
|
|
|