Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

laugardagur, júlí 26, 2003


Blaðrað yfir bjór

Mikið skelfing var gott að fá tveggja daga frí frá vinnu. Það var nýtt á ákaflega gáfulegan hátt, þótt sá háttur hafi engan veginn verið sá allra skemmtilegasti. Nú er búið að mála eldhúsið, grunna alla dyrakarma, lakka eina umferð yfir eldhúsborðið og snúa íbúðinni á hvolf. Innan skamms verður hún því orðin gríðarlega partý-vænn húsakostur með djammstuðulinn 7. Nú er hins vegar komin helgi og helgum eyði ég alltaf í Efstaleiti 1. Það fer nú að verða soldið pirrandi. Alla vega...

Í gærkvöldi skellti ég mér í bæinn með Hjördísi. Við fengum okkur öllara og blöðruðum um alla heima og geima. Stuð! Ég útskýrði fyrir henni sæt-stelpa-á-lausu-boðið-í-partý-regluna og þótti hún ákaflega fyndin. En þessi regla getur verið alveg hreint mögnuð ef einhver er nógu ruglaður til að taka hana alvarlega eða halda áfram að hamra á henni þangað til kynngimagnaðir hlutir gerast.

Svo gerði ég henni grein fyrir að ef hún ætlaði að fara eftir reglunni (sem hún gerir að sjálfsögðu, enda löghlýðinn borgari) þá yrði hún að sætta sig við það að ég hef ekki mesta gelgju-tónlistarsmekk í heimi, ótrúlegt en satt. Ekki einu sinni Eva kemst með tærnar þar sem Anton hefur hælana í gelgju-tónlist. Að sjálfsögðu er þetta gríðarlegt hrós og mættu margir taka sér þennan magnaða tónlistarsmekk til fyrirmyndar. En þessar lýsingar virtust ekki hafa nein áhrif á Hjördísi, hún var samt staðráðin í að fara eftir reglunni, enda er hér um óvenju góða reglu að ræða.

Í kvöld verður magnaðasta partý sumarsins haldið. Þetta verður án efa mjög merkilegt partý, haldið í snekkju nokkurri í smábátahöfn stórlaxa landsins. Fregnir herma að áfengi verði ekki sparað og Roxette og Girls Aloud fá án efa að láta raddir sínar hljóma. Afleiðing af þessu partýi verður að öllum líkindum gríðarleg þynnka á morgun þar sem ég kem til með að eyða 12 tímum fyrir framan tölvuskjá inni á fréttastofu sjónvarps. Stuð!

Sunna 12:12


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli