|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, júlí 17, 2003 |
|
|
|
Íbúum fjölgar um einn
Jæja, þá er Óli loksins komin heim og ég er alveg að tapa mér úr kátínu. Ég er algjör gella núna í ýkt flottum nike-bol og prýdd flottum skartgripum... eða skartprikum eins og ég sagði alltaf þegar ég var lítil. Eitt af því fyrsta sem við gerðum var að sjálfsögðu að skella okkur á völlinn og sjá Leikni sigra Afríku. Flott mál, þótt ég hafi nú séð Leiknismennina spila betur en þennan leik.
En annars eru helstu fréttir dagsins þær að íbúum á Hofsvallagötunni hefur fjölgað um einn! Jú jú, ég bý ekki ein lengur í íbúðinni minni. Alveg stórskemmtilegt að vera komin með svona gullfallegt kompaní sem er nátengt stórum poppstjörnum í henni Ameríku. Þá er bara spurning hvernig þessi sambúð á eftir að ganga. Ég vona að ég drepi ekki nýja íbúann, það væri ekki gaman.
Sunna 14:48
|
|
|
|
|
|
|