|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, júlí 22, 2003 |
|
|
|
Endalaus þreyta
Ég er búin að vera endalaust þreytt í dag. Ég svaf frekar órólega undir morguninn, vaknaði fyrst um klukkan 4, svo klukkan 6, svo klukkan hálf 7 og þá var ég orðin pirruð. Þegar ég loksins átti að dröslast á lappir var það nánast ómögulegt. Mér tókst samt að komast í vinnuna á réttum tíma, beint á fréttafund. Þar var ég næstum sofnuð og átti í mestu vandræðum með að láta það ekki sjást. Þá greip ég til þess ráðs að fara upp í mötuneyti og fá mér rúnstykki og kókómjólk. Það skilaði takmörkuðum árangri, mér til mikillar mæðu.
Eftir rúnstykkið var ég næstum sofnuð fram á lyklaborðið. Guðjón og Svavar reyndu að vekja mig með því að spjalla við mig og hvetja mig til að fá mér kaffi. Ástandið hlýtur að hafa verið alveg skelfilegt því ég vaknaði ekki einu sinni við spjall um gelgjumyndir og gæði ofurmyndarinnar Legally Blonde.
Ég get ekki drukkið kaffi því það er ein af uppfinningum rugludallanna í 70 mínútum á Popp tíví, ógeðsdrykkurinn svokallaði. Það var því bara eitt í stöðunni, ég varð að svindla þannig að ég fór upp og fékk mér kók, alvöru kók. Ég þurfti bæði sykur og koffín til að virka. Kókið lagaði ástandið aðeins, en ekki nóg.
Eftir hádegið skánaði ég örlítið þegar ég fékk mér samloku og topp, rumpaði nokkrum símtölum af og kom málum frá. En hálftímadugnaður var það eina sem ég orkaði. Ég datt aftur niður í þessa ógurlegu þreytu. Nú sit ég rauð og glansandi í augunum og tel niður mínúturnar. Ég held að það sé ekki annað hægt að gera en að fara beint í rúmið og sofa eins og Þyrnirós. Þá kemur kannski fagur prins til mín og vekur mig af værum blundi. Miðað við hvernig ástandið er núna er ég ekkert viss um að ég vilji vera vakin...
Sunna 18:00
|
|
|
|
|
|
|