|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, júlí 14, 2003 |
|
|
|
Þá er það gúrka
Það er gúrkutíð núna, hvernig sem á það er litið. Í vinnunni er gúrkutíð. Ekkert í fréttum. Í búðum er gúrkutíð. Fullt af nýjum íslenskum gúrkum til. Í daglega lífinu er gúrkutíð. Ekkert að gerast. Þetta er nú að verða soldið pirrandi. En sem betur fer lýkur hluta gúrkutíðarinnar innan skamms. Þá verður eitthvað að gerast í daglega lífinu. Vonandi alla vega...
Það fer ofsalega í taugarnar á mér þegar mig langar til að tjá mig alveg svakalega mikið að hafa þá ekkert til að skrifa. Hvað gerir maður þá?
A) Það er hægt að skrifa um ekkert
B) Það er hægt að skrifa um eitthvað ótrúlega ómerkilegt
C) Það er hægt að slökkva á tölvunni og gera eitthvað þarfara
Æ, þetta eru allt frekar óspennandi möguleikar sem ég hef úr að velja. Kannski ég velji þá bara alla til að reyna að gefa lífinu lit.
A)
ööö... ekkert...
B)
Gerði voða lítið í gær. Ætlaði að vera dugleg að taka til en var þunn þannig að ég eyddi tímanum í að liggja uppi í rúmi, lesa Harry Potter og fór svo í mat til frænku minnar um kvöldið. Talaði við Óla þegar ég kom heim, horfði á dótið sem ég ætlaði að taka til, nennti ekki að gera neitt og fór að sofa.
C)
Hætt í bili og lofa að blogga ekki aftur fyrr en ég hef eitthvað að segja.
Sunna 18:03
|
|
|
|
|
|
|