|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
sunnudagur, júlí 06, 2003 |
|
|
|
Ég er hellisbúi
Ég datt inn í glanstímaritið Birtu í dag. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað ég komst að einu nokkuð merkilegu. Ég er hellisbúi. Ég rakst á samantekt um að hvaða leyti kynin eru ólík. Þar voru ýmsir gullmolar eins og t.d.
- Karlmenn hafa enga skoðun á gluggatjöldum.
- Konur setja hluti við neðsta þrepið í stiganum til að fara með þá upp í næstu ferð. Karlmenn klofa yfir þá þangað til þeim er sagt að taka þá með.
- Karlmenn geta ekki samtímis horft á íþróttir í sjónvarpinu og talað við konuna sína.
- Konum finnst skynsamlegt að láta sjónvarpsfjarstýringuna liggja ofan á sjónvarpinu.
Þessir punktar rifjuðu upp fyrir mér Hellisbúann. Óli hneykslaðist mjög þegar hann komst að því að ég hafði aldrei séð Hellisbúann þannig að hann kom með spóluna heim um daginn og við horfðum á sýninguna. Fyndin sýning, bjóst samt eiginlega við meiru. Ég var búin að sjá öll fyndnustu atriðin. En samt mjög góð sýning.
Þegar við vorum búin að horfa á spóluna sagði Óli "Ég sé þig nú ekki í alveg öllum kvenhlutverkunum í sýningunni". Og ég svaraði "Nei, ég sé mig samt í fullt af karlhlutverkum". Ég er nebbla ekki alveg þessi steríótýpustelpa. Hjá mér gilda nokkrar reglur:
- Það er óþarfi að hafa skoðun á gardínum. Þegar ég flutti í íbúðina mína í haust fékk mamma mín nett menningaráfall þegar kom að því að velja gardínur. Ég vildi þær ódýrustu úr IKEA, nennti ekki að skoða neitt af því að gardínur eru bara gardínur. Mamma stundi í tíma og ótíma "Þú kemst aldrei í Innlit-Útlit."
- Aldrei að geyma eitthvað við stigann til að muna eftir því að fara með það upp eða niður. Ég geri það aldrei (pabba til mikillar mæðu), og jafnvel kemur fyrir að ég gleymi því þótt ég sé beðin um að taka það.
- Íþróttir og spjall fer ALDREI saman. Þegar maður talar um leið og maður er að horfa á íþróttir þá er það annaðhvort til að bölva dómaranum, fagna marki eða röfla út af klaufaskap leikmanna. Mikilvægur íþróttaleikur er heilagur. Þá má alls ekki trufla mann. Þetta skilur móðir mín alls ekki. Henni finnst alltaf tilvalið að láta mig og pabba taka til þegar við erum að horfa á handbolta eða fótbolta. Ég er fegin að vera flutt að heiman.
- Sjónvarpsfjarstýringin á að vera við koddann eða á náttborðinu. Hvaða gagn er að fjarstýringunni ofan á sjónvarpinu??? Ef hún er ofan á sjónvarpinu er alveg eins hægt að sleppa því að eiga fjarstýringu. Mín er yfirleitt vel geymd undir koddanum eða við hliðina á honum. Þá er hún alltaf í seilingarfjarlægð.
Já, mér sýnist á öllu að ég sé ekki þessi steríótýpustelpa. En er það ekki bara nokkuð gott? Óli er alla vega ekki enn farinn að kvarta.
Sunna 10:54
|
|
|
|
|
|
|