|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, júlí 23, 2003 |
|
|
|
Gríðarleg átök
Ég lét loksins verða af því að fjárfesta í korti í gymminu í gær. Þar fóru fram gríðarleg átök og ég er öll lurkum lamin núna. Einkaþjálfarinn útbjó svakalegt æfingaprógramm fyrir mig og stóð yfir mér með svipuna til að fullvissa sig um að ég færi nú alveg örugglega eftir því í einu og öllu.
Þarna púlaði ég og púlaði, fann mjólkursýruna myndast í vöðvunum og þeir tútnuðu út eins og gerist þegar Stjáni blái fær sér spínat. Sumar lyfturnar fóru upp á þrjóskunni einni saman og á tímabili efaðist ég um að það hefði verið skynsamleg hugmynd að hefja þetta líkamsræktarátak. En bjútí is pein, um það verður víst ekki deilt.
Eftir 200 magaæfingar og 200.000 aðrar æfingar skellti ég mér í góða sturtu og um kvöldið var ég svo þreytt að ég hafði ekki orku í neitt nema vídjógláp. Tvær myndir urðu fyrir valinu, Star Wars II: The Attack of the Clones og ofurmyndin Crossroads með ofurbeibinu Britney Spears. Seinni myndin minnti mig á þegar ég sá Britney í eigin persónu hérna í denn... já, það var kúl! Ég var aðeins hársbreidd frá því að fá bleika kúrekahattinn hennar... ja, eða svona hér um bil.
Þótt dagurinn hafi verið erfiður þá uppskar ég svo sannarlega laun erfiðisins um kvöldið. Það var gott.
Sunna 09:52
|
|
|
|
|
|
|