|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, júlí 01, 2003 |
|
|
|
Helvíti framundan...
...en það er víst engum að kenna nema mér sjálfri. 17 daga vinnutörn er staðreynd. Ég veit ekki alveg hvað er að mér en af einhverjum ástæðum fannst mér þetta ekki vera neitt stórmál þegar ég lofaði mér í vinnu á þremur stöðum í vor. Ég hugsaði bara "hmmm... ef það er hægt að koma vaktatöflu saman fyrir þrjár deildir, af hverju ekki að nýta hana þá???" But man oh man, was I wrong...
Ég þjáist af slæmum sjúkdóm. Hann fær hér með nafnið aldrei-að-læra-af-reynslunni-syndrome. Málið er að ég tók svona pakka í fyrra líka. Og hvernig endaði það? Jú, jú, ég var send til augnlæknis vegna mikillar bólgu í augum, sá ekki lengur á tölvuskjáinn og gat ekki hreyft mig sökum vöðvabólgu. Læknirinn skoðaði augun rækilega og sagði svo "Segðu mér, hvernig ertu í öxlunum?" Ég hélt að maðurinn væri að grínast en hann var það nú bara alls ekki. Þegar ég viðurkenndi að ég væri slæm, væri ekki nógu dugleg við að standa upp sagði hann: "Hmmm... þú ert með vöðvabólgu í augunum." Læknirinn vildi endilega skrifa veikindavottorð fyrir mig í viku en vinnualkinn ég tók það ekki í mál. Ég leyfði honum í staðinn að sannfæra mig um að ég þyrfti að fara til Spánar í lok sumars. Já, svona fer fyrir manni þegar maður vinnur í tveimur deildum.
Og hvað gerði mín í vor? Hún samþykkti að vinna í þremur deildum! Ég er nýbúin að vinna 11 daga vinnutörn. Þá fékk ég einn dag frí, vann svo tvo daga, fæ einn frí og vinn svo 17 daga. Til að bæta gráu ofan á svart eru allir að fara til útlanda núna. Iðjuleysinginn fer til Spánar á morgun og foreldrar mínir og litli bróðir skella sér til Ítalíu um helgina og verða í 10 daga. En ég er ekkert svekkt... o, sei sei, nei...
Á sama tíma í fyrra lofaði ég sjálfri mér að vinna ekki svona mikið en ég gerði engan skriflegan samning við sjálfa mig. Nú nota ég bloggerinn til að festa þetta loforð á neti fyrir alheiminum. Næsta sumar ætla ég ekki að vinna svona mikið og ég ætla að taka mér sumarfrí og liggja á strönd. Og hana nú!
Sunna 23:52
|
|
|
|
|
|
|