Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

laugardagur, júlí 05, 2003


Í hnotskurn

Alltaf bætast nýir liðir inn. Ég hef ákveðið að kynna ýmsa vini mína og kunningja í nýjum lið sem fær nafnið Hnotskurnin. Sá sem hlýtur þann heiður að vera fyrstur í hnotskurninni er minn nánasti, Óli.

Óli í hnotskurn
Ég og Óli á karókí-keppni á RÚV um páskana.  (Ástæðan fyrir slaufum í hárinu á mér er sú að ég var í klappstýrubúning)
Nafn: Óli Njáll Ingólfsson
Afmælisdagur: 6. október
Stjörnumerki: Vog
Hver er maðurinn?
Óli er einnig þekktur sem þunglyndi vélritunarkennarinn. Hann kennir æsku landsins sögu og vélritun í Versló og hefur gaman af. Í frístundum sínum á veturna mætir hann sjálfur í sögutíma í háskólanum og hefur gaman af því líka. Í sumar er hins vegar annað upp á teningnum. Óli hamast og hamast við að gera ekkert og nær vart andanum sökum annríkis. Já, það getur verið erfitt líf að vera kennari. Hann ákvað að skella sér í tveggja vikna sumarfrí til Spánar í júlí til að slaka á eftir óvenju mikið vinnuálag.

Af áhugamálum Óla ber hæst að nefna krikket. Það er merkileg íþrótt sem stendur yfir í fjóra daga. Ég er ekki alveg komin jafn langt í krikket þannig að ég get ekki útskýrt hvenær leikmennirnir sofa í þessum fjögurra daga leikjum en það stendur allt til bóta. Auk þess að fylgjast með gengi krikkets í Vestur-Indíum, ástum og sorgum Tendulkars, hins mikla krikketleikara, og afar merkilegum sigrum stórliðsins Durham, er Óli einnig mikill knattspyrnuáhugamaður. Hann heldur með stórliðinu Leikni í Breiðholti en sögur fara ekki af öðrum liðum sem kauði þykist halda með.

Óli er netvæddur með eindæmum eins og sjá má á heimasíðu hans. Auk þess stjórnar hann gríðarlega öflugu fótboltaliði á netinu og heitir það Mumbai Maestro. Liðið var nálægt því að komast upp um deild á þessu tímabili en því miður vantaði bara herslumuninn. Þetta gengur betur á næsta tímabili. CM4 er einnig hluti af tölvu-fótbolta-áhuganum. Áhuginn á leiknum er svo mikill að heyrst hefur að hann taki leiðarvísinn með sér hvert sem hann fer. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Óli er mikill smekkmaður, hvernig sem litið er á það. Tónlistarsmekkur hans hefur verið staðfestur af tveimur sérfræðingum í tónlist sem einn sá albesti sem þekkist í þessum heimi. Tónlist á hug og hjarta Óla og hefur hann unnið sér það til frægðar að syngja stanslaust frá Akureyri að Varmahlíð. Geri aðrir betur.

Já, þetta er Óli í hnotskurn.

Sunna 14:15


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli