|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, júlí 15, 2003 |
|
|
|
How do you do?
Er ekki Roxette alveg mögnuð hljómsveit??? Ég er búin að blasta Girls Aloud-Roxette-Ace of Bace-diskinn hans Antons alveg á fullu og verð að segja að tiltektin gengur miklu betur þegar maður syngur hástöfum með How do you do, do you do, the things that you do... Það er sko alveg á hreinu að diskurinn verður gerður upptækur og fer ekki af Hofsvallagötunni aftur!
Eftir að Roxette fór að hljóma um Hofsvallagötuna gjörvalla, Ásvallagötu, kringum Héðinn með gemsann og á Hringbrautinni hafa hlutirnir allt í einu farið að ganga alveg ótrúlega vel. Ég er búin að setja í þvottavélar, ryksuga, taka út úr þvottavélum, þrífa sturtuna... alveg ótrúlega dugleg. Samt er íbúðin enn á hvolfi. En þetta reddast.
Ég stóð frammi fyrir því að þurfa að taka mikilvæga ákvörðun í morgun. Ég leit í kringum mig og svo leit ég í spegil. Valið stóð á milli þess að halda áfram að taka til eða hefjast handa við að taka mig til. Ég hafði klukkutíma þangað til ég átti að mæta í vinnu og hugsa að ég hefði nú skotið ansi mörgum skelk í bringu ef ég hefði mætt í vinnuna án þess að skipta um föt.
Þar sem ég stóð á hreingerningarsloppnum, með rúllurnar í hárinu og skuplu yfir, með bleika gúmmíhanska, á flókainniskóm með dúsk horfði ég á sjálfa mig og vissi satt að segja ekki hvort leit verr út, ég eða íbúðin. Ég ákvað því að hafa samband við beauty consultantinn minn suður í höfum og fékk þau skilaboð frá honum að ég ætti að setja sjálfa mig í forgang, íbúðin skipti minna máli. Það var gert og nú sit ég afskaplega pent klædd, nýbúin að fara í sturtu, með stinna vöðva eftir útihlaup gærkvöldsins og bíð eftir að nokkrum fundum ljúki svo ég geti undirbúið kvöldvinnuna.
Á meðan ég er svona sæt og fín liggur íbúðin mín hálfgrafin undir fatafjallinu sem ég var að taka upp úr þvottahúsinu, stofan er eins og Herjólfsdalur, óendanlega mikið útilegudót er hægt að finna þar og umgengnin eins og eftir 10.000 manns á Þjóðhátíð. Svefnherbergið er óðum að taka á sig mynd, enda er það mikilvægasta herbergið. Ég hef í hyggju að eyða miklum tíma þar á næstunni og því ekki úr vegi að gera það soldið snyrtilegt. Baðherbergið hefur líka allt í einu fengið nýjan lit á gólfið, ótrúlegt hvað gamla Nilfisk-ryksugan getur gert mikið kraftaverk!
Í kvöld verður svo Öskubuskutiltekt dauðans, þ.e. ég klára að tína upp baunirnar og hef mig svo til fyrir ballið! Og gott ef Roxette verður ekki bara sett á fóninn... Jeij...
Sunna 14:32
|
|
|
|
|
|
|