Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

sunnudagur, júlí 27, 2003


"Þið hljótið að vera á lyfjum!!!"

Já, ég er sum sé mætt í vinnuna eina ferðina enn. Á þeim tveimur tímum sem ég hef verið hérna í Efstaleitinu hef ég fengið að heyra ýmislegt.
  • Hvað er eiginlega að ykkur þarna í textavarpinu??? Þið hljótið að vera á lyfjum!!!
  • [Skellihlátur] Ertu soldið framlág? [Skellihlátur]
  • Viltu Gammel dansk? ...svona aðeins til að rétta þig af...
  • Er ég eina edrú manneskjan á svæðinu eða hvað???
Þetta eru allt afar merkilegar setningar, einkum í ljósi þess að ég er ekki timbruð. Ég viðurkenni að ég hefði alveg gott af pínulítið meiri svefni, svona 5 tímum eða svo. Hvað fær fólk þá til að segja svona?

Sá sem benti mér á að ég væri á lyfjum var pirraður neytandi (greinilega vakinn aðeins of snemma í morgun af krökkunum sínum þegar þau fóru að hoppa á maganum á honum). Sökum þreytu minnar var ég aðeins utan við mig og breytti finnska stúlknalandsliðinu yfir í danskt. Manninum fannst það aðeins of stór innsláttarvilla og dró því þá ályktun að ég væri uppdópuð. Nei, ekki alveg, en hefði svo sem ekkert á móti örlitlu kódeini.

Ég staulaðist fram á símaborð áðan til að ná í blöðin. Var næstum sofnuð á leiðinni og kom geispandi að borðinu. Símadaman dó næstum úr hlátri og spurði hvort ég væri framlág. Oooo nei, þynnkubanaaðgerðir tókust með eindæmum vel í nótt. Þegar við vorum komin heim fengum við okkur fjölvítamín, c-vítamín, ýkt mikið vatn, íbúkód og grillaða samloku. Svínvirkaði.

Um 10 leytið mætti ég á fréttafund og þar var mér boðið upp á brauð með osti og vínarbrauð. Einn fréttamaðurinn horfði aðeins á mig þegar ég stundi af ánægju yfir brauðsneiðinni með ostinum og bauð mér gammel dansk, svona aðeins til að rétta mig af. Hmmm... fyrr myndi ég éta á mér höndina en að fá mér gammel dansk klukkan 10 á sunnudagsmorgni í vinnunni.

Anna Kristín, fréttamaður, rölti yfir á sjónvarpið í morgun með smá stoppi hjá mér. Um leið og hún sá mig velti hún fyrir sér hvort hún væri sú eina sem væri edrú í húsinu. Hmmm... ekki hef ég tekið eftir því hvort menn eru mikið í glasi svona í morgunsárið en aldrei að útiloka neitt. Mér sýnist samt flestir hafa náð örlítið meiri svefni en ég.

En partýið var gott í gær. Fólk var drukkið, löggan kom, Eiríkur Hauksson kom, sá og sigraði og ég hristi kokteila eins og ég fengi borgað fyrir það. Ég gæti svo sem túlkað það þannig að ég hafi fengið borgað fyrir það. Ég hafði alla vega frjálsan aðgang að barnum. Já, allur er barinn góður, eins og máltækið segir.

Sunna 10:47


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli