Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, júlí 21, 2003


Landshornaflakk og slysabörn

Viðburðarík helgi er afstaðin en landshornaflakkið er komið í fullan gang. Krikket (sem bæ ðe vei er ótrúlega kúl íþrótt) var megin viðfangsefni helgarinnar. Ég horfði á miðnæturkrikketleik á föstudaginn, skrapp úr vinnunni til að fylgjast með krikketleik á laugardaginn, þrýsti óendanlega mikið á íþróttadeildina að flytja fréttir af krikket og var sjálf með öflugar fréttir af úrslitum krikketleikjanna í textavarpinu. Breska sendiráðið bauð svo krikketliðunum og fylgihlutum í garden party á laugardagskvöldið. Það var kúl, nóg af bjór.

Í gær var svo haldið í Stykkishólm. Til að gera hvað? Jú, auðvitað að horfa á krikket. Leiknum seinkaði víst aðeins þannig að þeir gátu bara spilað í korter og þá þurftu þeir að fara í móttöku hjá bæjarstjóranum. Okkur var reyndar boðið með líka en við nenntum ekki. Þess í stað gallaði Óli mig upp. Ég fékk krikkethlífar, hanska og kylfu og Óli tók bolta og kenndi mér að slá. Svo skiptum við og hann kenndi mér að kasta. Þegar ég var búin að vera í úlnliðnum æfðum við okkur í að grípa. Það er nú bara eitt hægt að segja um þessa æfingu. Krikket er kúl!

Á landshornaflakki okkar komumst við að því að krakkar úr Grafarvogi eru sori þessa lands. Við völlinn héngu leiðindastelpur sem ákváðu að það væri ekkert sniðugra en að bögga ókunnugt fólk. Að sjálfsögðu féllu hleypidómar í huga mér um leið og kvikindin fóru á stjá. Stykkishólmsbúar fengu strax stimpilinn white trash of Iceland. Í hópnum var stelpa sem var sínu verst. Ætli hún hafi ekki verið 11 ára svona u.þ.b. Stelpuræksnið var gjörsamlega óalandi og óferjandi og hefði sko betur mátt fara í lakið. Hún fór að yfirheyra alla um hvaðan þeir væru og sagðist sjálf vera úr Grafarvogi. Af þeim upplýsingum er auðvelt að draga þá ályktun að krakkar úr Grafarvogi séu svartur blettur á landi og þjóð. Stelpan er eitt mesta stórslys sem orðið hefur á Íslandi. Og hana nú!

En þá að frekara landshornaflakki. Í dag verður haldið á Flúðir þar sem mamma og pabbi eru í sumarbústað. Því miður verður ekkert krikket spilað þar en hver veit nema Kári sé til í smá fótbolta. Hmmm... það væri stuð!

Sunna 14:50


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli