|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, júlí 15, 2003 |
|
|
|
Lyklar fyrir latex
Alveg er ég búin að fá mig fullsadda af lyklaveseni. Taskan mín er eins og Mary Poppins-taska. Það kemst óendanlega mikið dót í hana og ég gæti eytt löngum stundum við að draga upp úr henni hestvagna, hattastanda og regnhlífar. Svona Mary Poppins fídus getur verið ótrúlega skemmtilegur stundum en þegar kemur að því að leita að lyklum er þetta algjörlega óþolandi.
Ég hugsa að ég eyði örugglega mörgum klukkutímum samanlagt á dag í að leita að lyklunum mínum þarna ofan í gímaldinu, og gildir þá einu hvort um ræðir bíllyklana, húslyklana eða lyklana hjá mömmu og pabba. Í dag brast þolinmæðin endanlega. Ég ákvað að grípa til minna ráða og endurskipuleggja allt í töskunni. Í henni er lítið rennilásahólf sem hefur hingað til verið kallað latex-hólfið. Nú er leður- og latex-dögum mínum hins vegar lokið og þess vegna fær nýja hólfið það hlutverk að hýsa lyklana mína. Ég skal hundur heita ef ég þarf að leita að þeim aftur!
Sunna 18:10
|
|
|
|
|
|
|