|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, júlí 30, 2003 |
|
|
|
Með gúmmíhanska að vopni
Nú skal það takast! Upphitun fyrir innihátíðina Efstaleiti 2003 hefst á morgun. Þá verður frí tekið frá vinnu og innilegu dótið tekið saman. En að mörgu þarf að huga ef leggja á í innilegu um verslunarmannahelgina, enda er það alkunna mikinn útbúnað þarf að hafa með sér á slíkar hátíðir.
Íbúðin mín er í slæmum málum og ekki er víst að innilegubúnaðurinn finnist í fyrstu tilraun. En ég er handlagin húsmóðir með ráð undir rifi hverju.
Hvernig á að koma íbúðinni í lag og finna innilegubúnaðinn
- Fyrst skal haldið í ofurbúð á borð við Bónus eða Krónuna. Hagsýnar og handlagnar húsmæður hugsa að sjálfsögðu um hvern eyri og spara stórfé á hverju ári með því að halda vel utan um heimilsbókhaldið. Í Bónus eða Krónunni skal kaupa eftirfarandi hluti:
- bleika gúmmíhanska
- alls konar Ajax, Mr. Muscle og Mr. Propper-sprey og ef ástandið er mjög slæmt þá borgar sig að bæta við leysigeisla og þjarki
- kúst og fægiskóflu (en á öllum góðum heimilum er slík munaðarvara þegar til)
- gólfbón og gólfsápu (ef moppu vantar má bæta henni við)
- skuplu
- klósettskrúbb, klósetthreinsi og closan clean salernisvökva sem flæðir um skálina, heldur henni hreinni og gefur ferskan ilm í hvert skipti sem sturtað er niður
- Eldspýtur eða kveikjara og grillvökva eða bensín
- skordýraeitur
- Þegar heim er komið er byrjað á að koma sér í hreingerningargallann. Fólk ræður því hvort það fer í Breiðholtssloppinn eða velur sér bara einhver drusluföt. Skuplan er algjört möst og allir vita að hreingerningin hefst ekki fyrr en bleiku gúmmíhanskarnir eru komnir á. Þá er maður sko fær í flestan sjó.
- Næsta skref er að kveikja á græjunum og skella Queen - Gratest Hits II á fóninn. Þar er að finna tiltektarlag allra tíma I Want To Break Free. Gott getur verið að taka af sér bleiku gúmmíhanskana áður en diskurinn er settur í því erfitt getur verið að munda viðkvæman diskinn þegar maður er svona innpakkaður í latex.
- Um leið og Freddy hefur upp raust sína og ómfagrir tónar líða um íbúðina er okkur ekkert að vanbúnaði. Fyrst eru öll óhrein föt tekin upp af gólfinu og þeim komið fyrir í þvottakörfu. Ef þau eru það skítug að nauðsynlegt reynist að hoppa á þeim til að mylja skítinn úr þeim þá borgar sig jafnvel bara að setja þau í poka og henda þeim beint út í tunnu.
- Þegar búið er að fjarlægja öll föt af gólfinu er náð í svartan ruslapoka. Gömlum pizzukössum, kortakvittunum síðustu 3 árin og fleiru smálegu, sem engum tilgangi þjónar, er fleygt beinustu leið í ruslapokann. Ef skordýr leynast í ruslinu er skordýraeiturbrúsinn mundaður vandlega og þrýst af miklum krafti á takkann, miðað vel á kvikindin og þau drepin. Finnist önnur stærri kvikindi í ógeðinu gæti reynst nauðsynlegt að hringja í meindýraeyði.
- Eftir þessar ofuraðgerðir ætti gólfið að vera laust við allt drasl. Þá þarf að blanda gólfsápu við vatn. Þarna koma gúmmíhanskarnir að góðum notum því hitinn á vatninu finnst síður í gegnum þá. Heitt vatn er einmitt forsenda hreinlætis. Eftir sápuskrúbbið er gólfbóni hellt yfir gólfið og því dreift vel. Gott væri að bæta við annarri umferð, bara svona upp á fönnið.
- Mikilvægt er að muna að skipta um geisladisk þegar Freddy hættir að syngja. Ef maður vill er svo sem alveg sjálfsagt að hafa hann bara á rípít, en mig langar að benda á að Roxette er afar góð hreingerningahljómsveit líka. Fyrir þá sem vilja brenna kaloríum í tiltektinni er mjög sniðugt að skella á góðum 80's lögum, t.d. Fame, Flashdance og Gaggó Vest eða dívunni Britney Spears. Þá fer maður sko að dilla sér.
- Nú ætti gólfið að vera orðið glansandi, hreint og fínt. Þá tekur smotterís-vinnan við. Föt eru brotin saman og gengið er frá hlutum. Til að stytta sér stundir er afbragðs sniðugt að syngja hástöfum.
- Gólfið orðið hreint, allir hlutir á sínum stað, hvað er þá eftir? Jú, jú, baðherbergi og eldhús. Uppvask er yfirleitt í höndum karlmanna enda eru þeir afar lagnir við að finna sniðuga tækni til að gera það sem best. Klósettið er best að þrífa búinn reykköfunargalla, með gúmmíhanskana vel upp á handlegg og súrefnisgrímu á sér. Skíturinn skal burt!
- Jæja, nú er ekkert eftir. Innilegubúnaðurinn ætti að hafa komið í ljós í þessari hreinsun og þá er hægt að halda innihátíðina Efstaleiti 2003 hátíðlega með stimpilkortið góða.
Ólíkt útihátíðum um land allt kostar ekkert inn á innihátíðina í Efstaleiti. Fólk er velkomið í heimsókn og alltaf er vinsælt ef einhver tekur sig til og bakar köku. Ég myndi jafnvel launa viðkomandi með því að smella á hann einum kossi eða svo. En þá er þessum hreingerningarpistli lokið. Nú hvet ég alla til að setja upp bleiku gúmmíhanskana og undirbúa innihátíð!
Sunna 15:38
|
|
|
|
|
|
|