|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
laugardagur, júlí 19, 2003 |
|
|
|
Miðnæturkrikket er hörkuspennandi
Þá er ég loks búin að kynnast krikketi af eigin raun. Í gær fór ég á Valbjarnarvöllinn þar sem dúndurlið Kylfunnar tók á móti breska stórliðinu Effigies Eleven í miðnæturkrikketi, en mér skilst að það hafi aldrei verið prófað áður. Alltaf erum við Íslendingar jafnduglegir við að slá met! Ég fór á völlinn án þess að hafa hugmynd um út á hvað leikurinn gengur, kunni engar reglur og ekki neitt. Það eina sem ég vissi var að leikmennirnir eru í alveg ótrúlega asnalegum búningum. Ég meina, ekki nokkur maður lætur sjá sig í hvítum buxum! No way in hell!!!
Eins og flestum er kunnugt um er Óli gríðarlegur áhugamaður um krikket. Hann reyndi að útskýra fyrir mér leikreglurnar um daginn en þær fóru nú eitthvað aðeins fyrir ofan garð og neðan. Þetta átti allt að skýrast betur þegar ég sæi krikketleik þannig að ég ákvað að fylgjast gaumgæfilega með til að læra leikinn. Það gekk nú frekar erfiðlega í fyrri hálfleik en ég náði þó grunnhugmyndinni. Í seinni hálfleik var komið að íslenska liðinu að slá. Þá eru aðeins 2 inni á vellinum þannig að ég gat fengið smá skýringar með á meðan Óli beið eftir að röðin kæmi að sér. Þá sá ég þetta allt loksins í réttu ljósi og sá að leikurinn var alveg hörkuspennandi.
Íslenska liðið byrjaði á að láta innflytjendurna slá, af því að þeir voru bestir. Síðar fengu áhugamennirnir að spreyta sig og þá bjuggust menn nú ekki við að stigum myndi rigna inn. En hvað gerðist svo? Óli nokkur Njáll, fór inn á völlinn, með innblástur frá hinum magnaða Tendulkar. Hann var í merkilegum búning sem sjá má hér og með svakalega kylfu. Fyrst gekk ekki nógu vel að kýla boltann nógu langt til að ná hlaupum en svo kom Tendulkar-andinn yfir hann og hann þrusaði hverjum boltanum út af á fætur öðrum. Afraksturinn var heil 9 stig og náði hann að verða 3. stigahæsti leikmaður liðsins, svona að því er við komumst næst. Hann hefði sennilega getað gert út um leikinn ef honum hefði ekki verið skipt út af svo að allir fengju að spila eitthvað. Í venjulegum krikketleik fer maðurinn ekki út af fyrr en hann er tekinn út af með ákveðnum aðferðum. Leikurinn fór 57-63, sem er nú nokkuð gott fyrir svona amatöra. Ég er svo klár að skilja þetta!
Eftir leikinn tókum við frægasta leikmann vallarins tali, engan annan en Bruce Dickinson, söngvara hljómsveitarinnar Iron Maiden. Að sjálfsögðu smelltum við einni mynd af goðinu.
Já, krikket fer tvímælalaust á lista yfir íþróttir sem ég get fylgst með í sjónvarpinu af miklum áhuga og alveg æsispennt. Á þeim lista eru þegar íþróttir sem venjulegt fólk leggur ekki í vana sinn að fylgjast með eins og t.d. curling, en það er nú alveg mögnuð íþrótt! Alveg ótrúlegt hvað maður getur lært mikið um tækni við að sópa þegar maður horfir á curling á Eurosport.
Fyrir áhugasama eru nokkrar myndir af krikketinu hér.
Sunna 10:59
|
|
|
|
|
|
|