|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, júlí 11, 2003 |
|
|
|
Örlítið hliðarspor
Ég verð að játa á mig smá mistök. Ég hef víst hleypt Jennifer aftur inn í keppnina. Annars var ég komin á svakalega siglingu og virtist vera að stinga hana af. En í dag var ég dregin niður í svaðið. Auðvitað vil ég kenna öllum öðrum en sjálfri mér um þetta hliðarspor, ég bara saklaust fórnarlamb hópþrýstings. En ef ég lít gagnrýnum augum á sjálfa mig sé ég að það er engu öðru um að kenna en agaleysi í sjálfri mér. En eins og Stella Löve, góð vinkona mín, sagði eitt sinn Vandamálin eru til að takast á við þau. Mistökin eru líka til að læra af þeim.
Hver er þá boðskapurinn? Ég mæti að sjálfsögðu fílelfd aftur í átakið og mala Jennifer. Helgin lítur vel út og meira að segja er útlit fyrir minni vinnu en gert var ráð fyrir í upphafi. Lóð verða pumpuð, Billy Banks dýrkaður og dáður og hver veit nema ég skokki um Vesturbæinn, enda ákaflega fallegt hverfi. Harður heragi hefur verið tekinn upp hjá fjölskyldunni á Hofsvallagötunni. Hún skal nú fara eftir settum reglum og skjóta Jen ref fyrir rass. Svo einfalt er það.
Já, svona getur einveran leikið mann grátt. Maður verður geðveikur á endanum...
Sunna 18:10
|
|
|
|
|
|
|