|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, júlí 16, 2003 |
|
|
|
Ræs end sjæn
Jæja, klukkan orðin 8 og ég búin að vera í vinnunni í 2 tíma. Var í vinnunni til 22.30 í gær og hefði í raun ekkert þurft að fara heim því ég var mætt hingað klukkan 6, ótrúlega hress og kát. Ég hef aldrei verið svona hress á morgunvakt áður, þetta er alveg með ólíkindum.
Ástæðan fyrir því að ég er á morgunvakt núna þótt ég sé á kvöldvöktum alla vikuna er sú að Héðinn, öðlingur vikunnar, samþykkti að skipta við mig svo ég gæti farið út á flugvöll að sækja Óla. Ástæðan fyrir hressileika mínum og ofurmikilli kátínu er einmitt að umræddur Óli er að koma heim. Loksins!
Ég hef fengið leyfi vaktstjóra til að hætta fyrr í dag svo ég komist út á flugvöll og nú tel ég spennt niður klukkutímana. Samkvæmt textavarpinu er lending staðfest klukkan 10.55. Það þýðir að nú eru 2 tímar og 45 mínútur í lendingu. Æðislegt! Spennan magnast!!! Koma soooooo..........
Sunna 08:19
|
|
|
|
|
|
|