|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, júlí 08, 2003 |
|
|
|
Örsögur úr daglegu lífi
Marg hefur verið brallað í dag. Eins og endranær byrjaði dagurinn á vinnu. Gísli er kjörinn öðlingur vikunnar því hann mætti klukkutíma fyrr í vinnuna en hann átti að mæta og um leið og hann kom sagði hann að ég mætti bara fara heim að leggja mig svo ég yrði ekki geðveik. Gott ef hann frestaði geðveiki minni um örlítinn tíma með þessari góðmennsku.
Þunglyndur starfsmaður?
Eftir vinnu skrapp ég í Kringluna til að kaupa afmælisgjöf handa lítilli frænku. Hagkaup hafa tekið upp á því að hafa bara 2 kassa opna, akkúrat þegar útsalan er í fullum gangi, bara til þess að tryggja að maður standi alla vega hálftíma í biðröð. Eníveis... Ég er snillingur í að velja vitlausa röð og að sjálfsögðu gerði ég það líka í þetta skiptið. Ég beið og beið og afgreiðsludaman virtist hafa skroppið í kaffi eða eitthvað. Um viku seinna kom hún aftur og hélt þá áfram að afgreiða. Hún virkaði í vondu skapi og get ég svo sem skilið það. Hlýtur að vera ömurlegt að standa á kassa þegar brjálað er að gera. Sérstaklega ef hún hefur þjáðst af fyrirtíðarspennu eða eitthvað.
En svo rak ég allt í einu augun í dálítið og mér brá í brún. Þarna voru eins og fyrr segir teir kassar og tveir starfsmenn. Annar var rauðhærður unglingsstrákur, soldið horaður en að öðru leyti ekkert út á hann að setja, dálítið óheppinn í framan greyið en hann stóð sig með stakri prýði og afgreiddi eins og herforingi. Hinn starfsmaðurinn var lagleg stúlka á svipuðum aldri. Bæði voru þau klædd í einhverja forljóta appelsínugula stuttermaboli í eigu Hagkaupa.
Þar sem ég stóð í röðinni tók ég eftir að stelpan var öll rispuð á handleggjunum. Það sem flaug fyrst í gegnum hugann var að stelpan ætti brjálaðan kött. En svo fór ég að virða rispurnar betur fyrir mér. Þær voru á báðum handleggjunum, mjög samsíða og reglulegar alla leið upp að olnboga. Sumar voru nýlegar en aðrar voru gömul ör. Stelpan hefur skorið sig viljandi, á því leikur ekki nokkur vafi.
Nú er ég enginn sérfræðingur í þunglyndi en ég myndi giska á að þessari manneskju líði ekkert allt of vel fyrst hún er til í að afskræma sig og kvelja svona. Hvað varðar vinnufatnað hennar finnst mér ekki ná nokkurri átt að þetta fái að sjást. Kannski er ég bara viðkvæmari en aðrir, en mér finnst óhugnanlegt að sjá þetta. Þetta getur ekki verið eðlilegt.
Betty Crocker
Síðdegis fór ég í afmæli til 7 ára frænku minnar. Mér hefur ekki þótt það mikil skemmtun hingað til og eru nokkrar ástæður fyrir því. Foreldrar mínir taka alltaf upp á því að fara til útlanda þegar kemur að þessum afmælum þannig að ég þarf alltaf að vera fulltrúi fjölskyldunnar. Foreldrar afmælisbarnsins eru ekki þekkt fyrir að baka góðar kökur, súkkulaðikakan er alltaf óæt og aldrei er annað að drekka en kaffi eða diet kók. Þeir sem þekkja til mín vita að ég drekk ekki kaffi og allir vita að diet kók er drykkur djöfulsins og ætti að banna með lögum. Sem fyrr var aðeins diet sull og kaffi á boðstólnum en þau virðast hafa skipt út óætu súkkulaðikökunni fyrir Betty Crocker. Þar held ég að þau hafi loks hitt á rétta bylgjulengd í bökunarhæfileikum. Loks var hægt að borða súkkulaðiköku hjá þeim!
Vesturbæjargleði
Ákvað að skella mér á leikinn KR-FH áðan, fagna því að ég var ekki að vinna á leiktíma. Ég fór beint úr afmælinu og kom á völlinn rétt fyrir hlé. Mér þótti mikið til KR-inga koma þar sem þeir virtust hafa tekið upp á þeirri nýbreytni að spila skemmtilegan sóknarbolta og nenntu að hreyfa sig. Rétt eftir að ég kom á völlinn kom mark og stuttu síðar komst Veigar Páll í dauðafæri. Þetta lofaði góðu.
En Adam var ekki lengi í Paradís. Í seinni hálfleik tók við sami trúðaboltinn og hefur einkennt liðið í sumar. Ef þeir taka sig ekki saman í andlitinu þá er nokkuð ljóst að titillinn fer eitthvert austur á bóginn í haust. Ekki bætti úr skák að bæði dómari og línuvörður voru algjörlega úti á þekju. Dómarinn dæmdi á allt sem ekki var brot og ekkert á alvöru brotin.
Línuvörðurinn var laginn við að dæma rangstöðu þegar hann var víðs fjarri öftustu línu og gat því ómögulega séð hvort maðurinn var fyrir innan eða ekki og svo tók hann ekkert eftir því hvort boltinn var farinn út af eða ekki. Hann dæmdi ekkert þegar boltinn var kominn langleiðina upp í stúku. Þoli ekki svona leiðindabolta. Ég vil bara skemmtilegan og prúðmannlegan bolta og svo myndi ekki saka ef Colina dæmdi alla leiki í Landsbankadeildinni. Hmmm...
En KR-ingar náðu að krafsa í bakkann þrátt fyrir að FH-ingar hefðu verið sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Stigin urðu þrjú fyrir okkur heimamenn og það er ljúft. Vildi bara sjá aðeins fallegri bolta næst.
En nú er dagurinn búinn. Er að spá í að vinna þrekvirki og skreppa út að skokka. Kannski stend ég við svona loforð um leið og það er komið á netið. Hver veit?
Sunna 22:30
|
|
|
|
|
|
|