|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
laugardagur, júlí 12, 2003 |
|
|
|
Teiti á Hjara veraldar
Ég fór í teiti í gær með stjórnmálafræðinemum. Það var mjög gaman að sjá alla aftur og eiginlega hálfskrýtið, þetta er nebbla orðinn einhver svona vetrarfélagsskapur. Ég er ekki vön því að hitta alla svona sólbrúna og sæta og ekki að tala um námið á fullu.
Ég held að ég hafi slegið met í utanbæjarkeyrslu í gær. Það tók okkur nokkra klukkutíma að komast í partýið sem er á Hjara veraldar. Eins og allir glöggir menn vita er Hjari veraldar í Salahverfinu í Kópavogi en lengra er ekki hægt að komast í þessum heimi, nema þá kannski til tunglsins. Mér hefur ekki enn verið boðið í partý þar þannig að það er seinni tíma hausverkur að komast þangað. Á leiðinni mættum við bændum og búaliði, smaladrengjum með rollur og alls kyns furðuverum sem finnast í dreifbýlinu.
Við klikkuðum á að koma með tjald í útileguna en það kom ekki að sök þar sem partýhaldarinn átti þennan líka fína húsakost. Þegar var orðið of kalt til að vera úti tókum við bara snakkið með okkur inn. Fín skemmtun þótt hún hafi verið soldið langt í burtu frá siðmenningunni.
Í dag þarf ég svo að glíma við eftirmál teitisins. Ég skildi bílinn minn eftir þarna í sveitinni og þarf því að komast út á Reykjavíkurflugvöll í dag og ná næstu flugvél sem fer til Hjara veraldar. Þá tekur við önnur margra daga ferð heim en sem betur fer er nammidagur í dag þannig að sjoppustopp eru leyfileg. Þetta verða mikil átök.
Sunna 11:13
|
|
|
|
|
|
|