|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, ágúst 14, 2003 |
|
|
|
Fornir fjendur
Já, Valur - KR er í dag. Því miður er ég að vinna til kl. 8 þannig að ég missi af fyrri hálfleik. Ég hef samt í hyggju að storma beint á Hlíðarendann að styðja mína menn. Þrjú stig eru alveg krúsjal ef við ætlum að verja titilinn. Annars er ég ekki of bjartsýn eða sigurviss. Valsararnir koma sjálfsagt fílelfdir til leiks, fullir sjálfstrausts, eftir að hafa lagt Þróttarana á útivelli í síðasta leik. Mínir menn hafa líka lag á því að gera einfalda hluti mjög flókna og klúðra ótrúlegustu hlutum.
En nóg af svartsýnisspám. Hvernig sem leikurinn fer er nokkuð ljóst að annað hvort ég eða Óli verðum í vondu skapi í kvöld. Þá er bara spurning hvort er verra... hmmm...
Sunna 17:51
|
|
|
|
|
|
|