|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, ágúst 22, 2003 |
|
|
|
Ég hata próf!
Jæja, þá er prófið í Stjórnmálaflokkum, samtökum og lýðræði búið. Ég hata próf, þar ekkert flóknara en það! Ég tók nánast sama pakkann og fyrir jólaprófið. Þá las ég eitt hefti með nokkrum greinum og gafst svo upp á að læra þegar ég var búin að lesa 20 blaðsíður í Frá flokksræði til persónustjórnmála. Sú merka bók er einmitt eftir Svan Kristjánsson, sem er sennilega lélegasti penni á landinu! Máli mínu til stuðnings er hér dæmi um orðalag úr bókinni ...sitja í fílabeinsturni hugmyndafræðilegs hreinleika Crap!
Ég ákvað að reyna að dröslast í gegnum þetta fjárans flokksræði. Það náðist ekki alveg, vantaði um 50 blaðsíður upp á. Bókin er svo drepleiðinleg að ég náði ekki að lesa neitt annað. Ég held samt að mér hafi gengið betur en um jólin... en það er svo sem ekki erfitt að bæta þann árangur. Æ, þetta ógeð er búið... í bili alla vega. Var að heyra að Úlfar myndi kenna þetta í haust. Ef ég hefði vitað það fyrr hefði ég nú sleppt því að taka prófið. Úlfar er nebbla svo fínn í þessu, 7-9 á línuna, alveg sama hvað maður gerir.
Sunna 14:52
|
|
|
|
|
|
|