|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, ágúst 20, 2003 |
|
|
|
Gleði gleði gleði
Þegar útlitið er svart kemur stundum fyrir að öll vandamál manns leysast af sjálfu sér. Lausnirnar hreinlega ganga beint upp í hendurnar á manni.
Í gær spurði Eva mig hvar ég væri því Þorsteinn yfirmaður vildi tala við mig. Ég fór til hans en þá var hann á leiðinni á fund og bað mig um að koma seinna. Ég fór því að hitta hann áðan, skíthrædd um að ég hefði klúðrað einhverju síðast þegar ég var í auglýsingunum og hann ætlaði að reka mig. En það gerðist nú aldeilis ekki. O sei sei nei! Í staðinn bauð hann mér vinnu! Mér fannst það nú bara kúl.
Nú get ég farið áhyggjulaus að kaupa mér tölvu á eftir þar sem ég verð í 100% vinnu til áramóta. Svo er LÍN líka búið að borga mér smotterí vegna námslána á síðustu önn, það var kúl. Fjármálin fram að áramótum virðast því vera að smella saman. Nú er gaman að vera til! Þá er bara spurning hvernig mætingin verður hjá mér í skólanum... hmmm...
Æ, ég er svo bjartsýn núna að ég hlýt að meika skólann líka!
Sunna 09:48
|
|
|
|
|
|
|