|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, ágúst 06, 2003 |
|
|
|
I need a new walk
Jæja, þá er það komið á hreint. Göngulag mitt þykir víst ekki vera nógu gott þannig að Gísli Ferd. ætlar að reyna að bæta úr því. Ég ákvað að láta loks verða af því að fara í göngugreiningu í dag. Þetta hefur verið á döfunni í mörg ár, allt frá því ég fór að fá verki upp með hásinunum í útihlaupum í Hagaskóla. Það þurfti gríðarlega bakverki til að fá mig til að panta tíma. Niðurstaðan var sú að hásinin (sem hefur alltaf truflað mig) liggur skökk og þess vegna er mér alltaf illt. Fótleggirnir eru jafnlangir og valda því ekki skekkju á bakið eins og ég hélt en ég geng á jörkunum og fæ því allt álagið á of lítið svæði. Nú fæ ég innlegg. Þau eru dýr.
Í gær fékk ég svo svakalegan verk í bakið að ég gat ekki rétt úr mér. Ég gafst upp á að vera í vinnunni, bað Óla um að sækja mig og fór svo til pabba til að redda nógu góðum lyfjum fyrir mig því íbúfenið virkaði ekki á mig. Núna á ég nóg af voltaren rapid, sem er nú bara sniðugt. Það slær á verki eins og ekkert sé. En verkirnir eru samt meiri en lyfin ráða við. Allir vöðvar eru stífir og álagið á mjóbakið er allt of mikið.
Hvað er þá til ráða? Hmmm... mér dettur tvennt í hug; 1) að halda áfram að bryðja verkjalyf eða 2) fá sér aðeins neðan í því þangað til ég verð ónæm. Hmmm...
Sunna 12:22
|
|
|
|
|
|
|