|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
laugardagur, ágúst 23, 2003 |
|
|
|
Ólöglegt samráð Seðlabankans og ráðherra???
Ég hef gert mikla uppgötvun. Árið 1996 var sleginn skammtur af tíköllum fyrir Seðlabanka Íslands. Samkvæmt athugunum mínum virðist sem Seðlabankinn í samráði við ráðherra hafi snuðað landsmenn með þessari myntsláttu. Ég er reyndar algjör leikmaður í þessum efnum en ég hef alla vega lent í nokkrum vandræðum með tíkalla frá árinu 1996.
Í morgun datt mér í hug að fá mér kók í vinnunni, svona rétt í tilefni af því að það er nammidagur og svona. Það er svo sem ekki í frásögur færandi. Nema hvað... Ég rölti niður í kókmaskínuna með mínar 140 krónur. Fyrstu vonbrigðin voru að kókið hefði hækkað upp í 150 krónur. Ég rölti því upp og bað Ásu um að lána mér tíkall í viðbót. Svo fór ég aftur niður og skellti peningnum í. Hundraðkallinn rann niður mjög auðveldlega. Því næst fóru tveir tíkallar sömu leið. Þegar ég ætlaði að setja þann þriðja í þá fékk ég hann alltaf til baka. Maskínan vildi ekki sjá tíkallinn. Ég setti hina í og fór svo upp að skipta þessum gallaða tíkalli. Þar fann ég nokkra tæknimenn, útskýrði vandamál mitt og einn þeirra sagði "Er hann frá 1996?". Ég kíkti, jú, jú, það passaði. Þá sagði annar "Hann er of léttur, það ætti að vera nóg að bleyta hann eða setja smá varalit á hann". Ég gerði það nú reyndar ekki heldur fékk bara annan tíkall frá 1987, því herrans ári. Tækið var sáttari við þann pening og ég fékk kókið mitt.
Þegar ég kom aftur upp sagði ég Ásu hvað hafði gerst. Við fórum í miklar spegúlasjónir. Náðum í nokkra tíkalla úr skiptimynt deildarinnar og flokkuðum þá eftir aldri. Og viti menn!!! Tíkallarnir frá 1996 voru sýnilega þynnri en hinir! Ekki mikið reyndar, en nógu mikið til að kók-tryllitæki samþykki þá ekki.
Þarna blossuðu upp samsæriskenningar hægri vinstri. Ég fór strax á netið að leita að upplýsingum um myntsláttu. Fann reyndar ekkert og fór því í lagasafn Alþingis. Þar fann ég Lög um gjaldmiðil Íslands og þar segir í 5. gr., 3. mgr. og 4. mgr.:
Ráðherra skal, að tillögu Seðlabanka Íslands, ákveða ákvæðisverð peninga þeirra , sem slá skal, svo og gerð, þunga, stærð og málmblöndu, og skal birt auglýsing um það efni.
Peningar þessir skulu það rétt slegnir, að mismunur á þunga einstakra peninga, sem eiga að hafa sömu þyngd, skal eigi nema meira en einum af hundraði.
Jahh, hvur skrambinn!!! Gæti verið að þarna hafi ráðherra og Seðlabanki haft með sér ólöglegt samráð um að minnka útgjöld í myntsláttu með því að hafa tíkallana 1996 þynnri og léttari en gömlu tíkallana??? Ég bara spyr... Ég meina, þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í veseni með tíkalla í kókvél. Ég hef bara aldrei áttað mig á alvöru málsins...
Sunna 11:47
|
|
|
|
|
|
|